Árdís - 01.01.1944, Side 31

Árdís - 01.01.1944, Side 31
aldrei segist hún muni gleyma þeim degi. Ann Sullivan var tvítug að aldri, fríð sýnum og gaf af sér yndisþokka. Hún tók innilega um hönd barnsins og þó að Helen skildi ekki hugtakið “vinur” eða “kærleikur”, þá fann hún einhverja sefandi stiauma streyma inn í sál sína. Það er naumast hægt að gera sér í hugarlund hvernig ástatt var í huganum sem hinn ungi kennari átti nú að fara að efla, þjálfa og hafa áhrif á. Ekkert hugboð um nokkurn skapaðan hlut átti þar heima. Helen vissi ekki að nokkur hlutur ætti nafn. Eitt orð mundi hún óljóst frá, því áður en hún veiktist. Það var orðið ‘vatn’. Hún hafði haft það upp aftur og aftnr í hinum einkennilega róm heyrnarlausra, þar til það var orðið svo afskræmt að engin gat skilið það. Því síður vissi hún að nokkur hugsun væri til, að hugmyndalíf gæti þróast og fylt lífið af unaði og ást í samstarfi við meðbræðurna. Þegar kennarinn kom, gaf hún Helen brúðu sem börnin í blindra- skólanum höfðu sent henni. Helen hélt á brúðunni og kennarinn stafaði í lófa hennar á blindramáli “b-r-ú-ð-a”. Svo tók hún litlu hendina á Helenu og lét hana sjálfa stafa í hinn lófann orðið “brúða”. Helen hafði gaman af þessum fingraleik þó hún skildi ekkert í honum. En það var hin undursamlega þolinmæði og úrræðasemi Miss Sullivan, sem urðu til þess, að yfirstiga mótþróaköst og vanstillingu blinda nemandans. Einn dag eftir að verða fyrir mörgum vonbrigðum með að koma Helenu í skilning um það að þetta sífelda fingradútl héfði sérstaka þýð- ingu tók kennarinn litlu stúlkuna við hönd sér, leiddi hana út í sólskinið og út að brunnhúsinu þar sem verið var að dæla upp vatni. Hún lét kalt svalandi vatnið renna niður á hendi Helenar, og um leið stafaði hún hægt í hinn lófa herinar “v-a-t-n”. “Eg stóð graf kyr,” segir Helen í æfisögu sinni, “og hafði allan hug- ann við. Alt í einu rofaði fyrir óljósri meðvitund — eins og eitthvað gleymt væri að endurvakna í huganum, og eg fann að þetta orð v-a-t-n varð lifandi orð sem átti við vissan hlut; og sál mín vaknaði, fjötrarnir voru leystir af henni! Nú vaknaði í huga mér óseðjandi fróðleiksfýsn. Eg skildi að allir hlutir áttu nafn og hver fyrir sig skapaði nýja hugsun. Alt, alt vildi eg skilja og læra, og þekkja. Alla örðugleika skyldi eg yfir- stíga og öllum þröskuldum hrinda úr vegi!” 1 júnílok gat Helen skrifað stutt bréf og áður enn ár var iðið var hún farin að skrifa mjög aðlaðandi barnslegan stík Eftir það gekk henni eins vel eða betur en ófötluðum börnum með allan lærdóm, nema ef vera skyldi, reikning. Það var satt, sem Ann Sullivan skrifaði vinkonu sinni, himinlifandi af gleði “að hér hefir gerst kraftaverk.” Þegar Helen var tíu ára, frétti hún um blindan daufdumba í Noregi, Ragnhild Kaata, sem hafði lært að tala. Nú réði hún sér ekki fyrir ákafa. 29

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.