Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 2

Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is íslenskur ríkisborgari www.okkarsjodir.is Jóhanna, nú hefur þú tækifæri til að standa við orð þín um að velferð aldraðra gangi fyrir. Það er líka spilling í lífeyrissjóðakerfinu, þar þarf að taka til. Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 20.000 manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir eru okkar eign! Undirskriftirnar afhentar í næstu viku! Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is FORSTJÓRI Norðuráls segir samþykkt Alþingis á lög- um um heimild til að gera fjárfestingarsamning vegna byggingar álvers í Helguvík mikilvægan áfanga. Samn- ingurinn er ein af forsendum þess að hægt sé að fjár- magna uppbygginguna, en hann segir að fleira þurfi að klára. Verið sé að vinna í umhverfismati vegna stækk- unar Reykjanesvirkjunar og flutningsmannvirkja. Alþingi samþykkti í fyrrakvöld lög sem heimila iðn- aðarráðherra að ganga frá fjárfestingarsamningi við Century Aluminum og Norðurál Helguvík ehf. um bygg- ingu álvers. Drög að samningi voru gerð í lok síðasta árs. Þau taka meðal annars til skattamála og eru í takt við hliðstæða samninga sem gerðir voru vegna uppbygging- ar álveranna á Grundartanga og í Reyðarfirði. Norðurál er í viðræðum við evrópska banka um fjár- mögnun verkefnisins. Fram kom í viðræðum forsvars- manna Norðuráls og iðnaðarráðuneytisins að samning- urinn væri ein af forsendum fyrir fjármögnun. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að samþykkt laganna sé mikilvægur áfangi, sérstaklega við þær að- stæður sem nú séu uppi á alþjóðlegum fjármálamarkaði og vegna tortryggni sem ríki gagnvart Íslandi. Áhrifin eru tvíþætt, að sögn Ragnars. Annars vegar felist í þessu jákvæð skilaboð frá íslenskum stjórnvöldum. Hins vegar veiti samningurinn ákveðna vissu fyrir því að leikreglum verði ekki breytt verulega þegar á líður. „Þegar verið er að horfa á svona mikla fjárfestingu vilja menn þekkja for- sendur verkefnisins eins vel og hægt er,“ segir Ragnar. Norðurál hefur öll leyfi fyrir byggingu og rekstri 250 þúsund tonna álvers og hóf framkvæmdir um mitt síðasta ár. Endurskoðaðar áætlanir gera ráð fyrir verksmiðju með allt að 360 þúsund tonna framleiðslugetu á ári sem byggð verði í fjórum 90 þúsund tonna áföngum. Er þá reiknað með að framleiðsla hefjist fyrir lok árs 2011. Ragnar segir unnið samkvæmt þessari áætlun en segir ekki hægt að tímasetja hvenær framkvæmdir fara í full- an gang. Fyrst þurfi að ljúka undirbúningi. Mikilvægur áfangi  Fjárfestingarsamningur er ein af forsendum fjármögnunar álvers  Forstjóri Norðuráls segir að ljúka þurfi undirbúningi áður en framkvæmdir hefjist af krafti Í HNOTSKURN »Verktakar vinna í róleg-heitum að byggingu fyrsta kerskálans í Helguvík og að hafnargerð. »Allt að 500-700 manns fávinnu í fullbyggðu álveri. »Reiknað er með að 800-1.200 manns vinni stöðugt við uppbyggingu álversins til 2015 og svipaður fjöldi við orkuöflun og tengd verkefni. »Álverið kostar rúmlega200 milljarða króna. Laxamýri | Vorið er í nánd en í Þingeyjarsýslu er mikill snjór á túnum og lítið um beit enn sem kom- ið er. Hestar eru víðast hvar á fullri gjöf, en frost hefur verið á nóttunni undanfarið og snjórinn lítið sigið. Þetta litla leirljósa folald í Reykjahverfi virðist ánægt með tilveruna en það er nýfætt og fær næga mjólk hjá hryssunni, sem trúlega er himinsæl með afkvæmið. Fólk vonast til að sumar og vetur frjósi saman og vorið verði gott. Himinsæl með leirljósa afkvæmið Morgunblaðið/Atli Vigfússon KAUPFÉLAG Skagfirðinga verður 120 ára sumardag- inn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl næstkomandi. Í tilefni dagsins býður félagið öllum héraðsbúum og fleiri gestum til veislu. Félagið fagnar fleira en afmælinu þennan dag, því nýtt verkstæðishús verður tekið í notkun. Aðalfundur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn í gær. Þar kom fram að heildartekjur félagsins á árinu 2008 voru tæplega 19 milljarðar króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var rúmlega 3,1 milljarður króna. Hagnaður fyrir gengisbreytingu erlendra lána var tæpir 2 milljarðar króna en tap eftir reiknaða gengis- breytingu erlendra lána og skatta var 2,9 milljarðar króna. Starfsmenn Kaupfélags Skagfirðinga og dótturfélaga eru um 600 talsins. Stærstu dótturfélögin eru FISK Sea- food og Vörumiðlun, sem KS á bæði að fullu, Fóður- blandan, sem KS á 70% hlut í og Sláturhús KVH ehf. á Hvammstanga, sem KS á helmingshlut í. Afmælisveislan verður haldin í nýju 3.300 fermetra verkstæðishúsnæði félagsins á Eyrinni á Sauðárkróki. Húsið verður formlega tekið í notkun við þetta tækifæri og sýnt gestum. Á dagskrá verður ýmislegt til hátíða- brigða, meðal annars tónlistarflutningur á skagfirska vísu. sisi@mbl.is Öllum Skagfirðingum er boðið í afmælisveislu Morgunblaðið/Einar Falur Veisluhöld Íbúum Sauðárkróks er boðið til veislu. ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem at- kvæðatafla Alþingis lítur svona út. Eins og sjá má á línunni lengst til hægri höfðu ráðherrarnir gerólíka afstöðu til stjórnarfrumvarps. Ráð- herrar Samfylkingarinnar sögðu já (grænt) en ráðherrar Vinstri grænna nei (rautt). Ríkisstjórnin klofnaði í afstöðu sinni þegar Alþingi samþykkti í að veita iðnaðarráðherra heimild til að gera fjárfestingarsamning fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um álver í Helguvík. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér er það ekki einsdæmi að ráðherrar greiði atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi. sisi@mbl.is Grænt og rautt í ráð- herraröð Morgunblaðið/Golli Taflan Já og nei og svartur þýðir að ekki hefur verið greitt atkvæði. LÖGREGLAN á Suðurnesjum stöðvaði í fyrrinótt tvo ökumenn fólksbifreiða sem voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá fyrri er grunaður um akstur undir áhrifum kannabisefna en farþegi í þeirri bifreið losaði sig við hvítt efni, sem talið er vera amfetamín, á gólf bílsins þegar hann varð var við lög- reglu. Seinni ökumaðurinn er grun- aður um akstur undir áhrifum am- fetamíns. Hann var réttindalaus og hafði áður verið sviptur ökurétt- indum. Þá var 17 ára ökumaður stöðvaður í Keflavík, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Sá hafði ekki öðlast ökuréttindi. Óku undir áhrifum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.