Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.04.2009, Blaðsíða 49
Minningar 49 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR ÞORLÁKSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21. apríl kl. 15.00. Guðríður I. Einarsdóttir, Örn Þórhallsson, Erla Magnúsdóttir, Þórunn Þórhallsdóttir, Jón Hjaltalín Ólafsson, Sigríður Þórhallsdóttir, Kristján Árnason, Einar Þór Þórhallsson, Andrea Rafnar, Hörn Harðardóttir, Matthías Jakobsson barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi GUNNAR GUÐJÓNSSON frá Hofstöðum, andaðist á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi fimmtu- daginn 16. apríl. Útförin fer fram í Stykkishólmskirkju laugardaginn 25. apríl klukkan 14.00. Laufey Guðmundsdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, Jón Ásgeirsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Jón Guðmundsson, Guðmundur Gunnarsson, Erla Þórðardóttir, Jónína Gunnarsdóttir, Benedikt Benediktsson.                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, fóstur- föður, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS SIGBJÖRNSSONAR, Melgerði 22, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við Karitas heima- þjónustu, starfsfólki deildar 11E á Land- spítalanum og deildar L5 á Landakoti fyrir hlýhug og góða umönnun. Ingi Kr. Stefánsson, Valgerður J. Gunnarsdóttir, Guðrún F. Stefánsdóttir, Bragi Einarsson, Jóhann Óli Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁSBJÖRNS BJÖRNSSONAR, fyrrv. forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur, Hæðargarði 29, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Bjarney Sigurðardóttir, Rannveig J. Ásbjörnsdóttir, Stefán Carlsson, Björn E. Ásbjörnsson, Valgerður Sveinsdóttir, Fanney B. Ásbjörnsdóttir, Tómas Jóhannesson, Ester Ásbjörnsdóttir, Einar Egilsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og útför GUÐMUNDAR MATTHÍASSONAR, fyrrv. framkvæmdastjóra, Dalbraut 14, Reykjavík, Sérstakar þakkir til indæls hjúkrunarfólks á deild L4 Landspítala Landakoti. Guð blessi ykkur öll. Ásta Hannesdóttir og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, BORGHILDAR G. GUÐMUNDSDÓTTUR FRÁ HARÐBAK Á SLÉTTU, DALBRAUT 20 REYKJAVÍK. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala Fossvogi, deild 4 B, fyrir elskulegheit í hennar garð. Hildur Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Árni Stefán Jónsson, Helga Ingibergsdóttir, Jakobína Jónsdóttir, Maria Hedin Jonsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR ÓLAFS FINNBJÖRNSSONAR, Bugðulæk 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki B-4 Landspítalanum í Fossvogi fyrir kærleiksríka umönnun. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Haukur Garðarsson, Laufey Guðmundsdóttir, Gylfi Georgsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Brynjólfur N. Jónsson, Helga Guðmundsdóttir, Sigurður Einar Einarsson, afabörn og langafabarn. Mig langar hér með nokkrum orðum að minnast Bjargar frænku minnar. Fyrsta minning mín um Björgu er úr eldhúsinu í gamla húsinu á Með- alfelli þar sem hún stóð við eldhús- bekkinn og leitaði að súkkulaði í skúffunum hjá sér til þess að gefa okkur systrunum þremur en við sát- um við eldhúsborðið hjá henni ásamt pabba. Það var ekkert súkkulaði til, aðrir gestir höfðu klárað það og ekki í fyrsta skipti sem það gerðist sagði Björg og hló. Þannig var Björg alltaf hress og kát og var ekki að mæða sig á hlutunum heldur tók þeim eins og þeir voru og gerði það besta úr þeim. Björg kom mjög oft í Akurnes enda stutt að fara og góð tengsl mynduðust á milli okkar systkin- anna og hennar. Hún var vinnusöm, alltaf boðin og búin að hjálpa til við þau verk sem verið var að sinna hverju sinni þegar hún kom. Nutum við systkinin þar krafta hennar, því oft á tíðum varð þetta til að létta Björg Jónsdóttir ✝ Björg Jónsdóttirfæddist á Rauða- bergi á Mýrum þann 14. september 1922. Hún lést á hjúkr- unardeild Heilbrigð- isstofnunar Suðaust- urlands, Hornafirði, þann 8. apríl sl. Útför Bjargar fór fram í Bjarna- neskirkju 17. apríl sl. okkur störfin, ekki þó þannig að hún ynni fyrir okkur heldur með okkur og sagði þá gjarnan sögu frá lið- inni tíð bæði af fólki og atburðum okkur til fróðleiks og skemmt- unar. Hún hafði mik- inn orðaforða og við lærðum af henni mörg skemmtileg orð. Alltaf virðist hafa verið líf og fjör þar sem Björg var stödd. Þessar heim- sóknir urðu stundum langar og þá kom fyrir að hún gisti í Akurnesi. Björg var lág vexti og það þótti mikill sigur á vaxtarskeiði okk- ar systkinanna þegar við höfðum náð hæð hennar og hún alltaf tilbúin að mæla bæði hæð og handarstærð því hún var handstór kona og þar hafði Björg alltaf vinninginn. Þrátt fyrir að Björg hafi mætt ýmsum erfiðleikum á lífsleiðinni og ekki alltaf haft úr miklu að spila var hún mjög jákvæð og lífsglöð mann- eskja og var iðin við að sækja ýmsa mannfagnaði, hún var alltaf í góðu sambandi við fjölskyldu sína, syst- kinin öll, vini og venslafólk. Hún var dugleg við að fara í heimsóknir og lét ekki hamla sér að hún hafði ekki bíl- próf hún gekk það sem hún þurfti að fara, hún fór á puttanum og þáði far ef henni var boðið. Í þessum ferðum setti hún hvorki veður né færð fyrir sig enda kom fyrir að hún yrði veð- urteppt. Mér verður oft hugsað til Bjargar, t.d. í sláturgerð á haustin. Hún var fastagestur í hádeginu á að- fangadag og þá búin að fara í kirkju- garðinn. Einnig á vorin þegar verið er að ferma því Björgu var víða boð- ið í veislur og hún gerði jafnt við alla og vílaði ekki fyrir sér að fara í margar veislur sama daginn og ég minnist þess að þegar ég fermdist þá kom Björg á miðnætti enda búin að heimsækja mörg fermingarbörn þann daginn. Við biðum eftir henni því við vissum að hún kæmi sem og hún gerði. Þær eru margar minningarnar um hana Björgu sem koma upp í hugann en að lokum vil ég segja þetta og tala þá fyrir hönd systkina minna líka: Elsku Björg, takk fyrir allar þær góðu stundir sem við átt- um með þér, minningarnar um þær geymum við með okkur. Guð geymi þig. Nanna Dóra Ragnarsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skila- frests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdar- mörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónar- menn minningargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.