Morgunblaðið - 19.04.2009, Side 52
52 Auðlesið efni
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 2009
Lögreglu-menn í óeirða-búningum
brutu sér leið inn í Vatns-stíg 4 í
Reykja-vík miðviku-daginn 15. apríl
þar sem hús-töku- fólk hafðist við.
Lögreglu-menn notuðu gas-úða og
keðju-sög til að ryðja sér leið að
hús-töku- fólkinu sem varðist með því
að hlaða hús-gögnum og fleiru
laus-legu fyrir hurðir og stiga og með
því að kasta mat-vælum að lög-reglu.
Tuttugu og tveir voru hand-teknir í
að-gerðunum.
Húsið að Vatns-stíg 4 hafði staðið
autt um nokkurt skeið.
Hús-töku-fólkið sagði betra að húsið
fengi hlut-verk í stað þess að
drabbast niður.
Vatns-stígur 4 er í eigu ÁF húsa,
fyrir-tækis Ágústs Friðgeirssonar.
Ágúst sagði að hann hefði keypt
húsið fyrir 3-4 árum, ásamt
Laugavegi 33-35 og bak-hús en
fram-kvæmdir hefðu tafist vegna
tíðra borgar-stjóra- skipta í Reykjavík.
Nú væri verið að vinna til-lögu sem
gerði ráð fyrir að götu-mynd
Laugavegar yrði varð-veitt.
Hús-taka á Vatns-stíg 4
Morgunblaðið/Júlíus
Gest-kvæmt var hjá
hreindýrs-kálfinum Líf og
fóstru hans, Dagbjörtu Briem
Gísla-dóttur, þegar bæði
Kolbrún Halldórs-dóttir
umhverfis-ráðherra og Karl
Karlsson, dýra-læknir hjá
Umhverfiss-tofnun,
heimsóttu þær á Sléttu utan
við Reyðar-fjörð á
fimmtu-dag.
Líf komst í fréttir vegna
bréfs Umhverfis-stofnunar
þess efnis að yrði ekki sótt
um leyfi fyrir henni gæti orðið
að af-lífa hana. „Ég er
sann-færð um að Líf muni
eiga langt og farsælt líf fyrir
höndum,“ sagði Kolbrún eftir
heim-sóknina í gær. „Það er
verið að skoða þetta í
ráðu-neytinu og það verður
auð-vitað fundin lausn á
þessu máli. Það á ekki að
fara að slátra henni Líf, svo
mikið er víst.“
Líf mun lifa
Bíó-dagar Græna ljóssins
hófust á föstu-daginn. Alls
verða 17 myndir sýndar á 17
dögum á hátíðinni sem fer
fram í Háskóla-bíói.
Mikið er um
heimildar-myndir á hátíðinni,
og segir Ísleifur Þórhallsson,
fram-kvæmda-stjóri, að þær
séu hver annarri betri.
Miða-sala er hafin á
midi.is, og kostar tíu miða
passi 6.000 krónur, en
einnig er hægt að kaupa
miða á einstakar myndir.
Ísleifur bendir á að hver mynd
verði ekki sýnd oft, og hann
hvetur fólk því til að fylgjast
vel með dagskránni.
Að-spurður segir Ísleifur
hugsan-legt að þetta sé í
síðasta skipti sem hátíðin
verði haldin, enda sé
reksturinn erfiður. Að-sókn
hafi minnkað þótt stöðugt sé
kvartað yfir því að fram-boð af
„öðruvísi“ myndum sé ekki
nægjan-legt. Þá sé erfitt að fá
styrktar-aðila, auk þess sem
gengið hjálpi ekki til. „Svo er
niður-halið að drepa okkur.
Margir sem ég tala við eru
búnir að sjá þessar myndir og
það er meira að segja
Torrent-síða sem er haldið úti
af ein-hverjum Íslendingum,
og þar er sér svæði sem
heitir Bíó-dagar þar sem
hægt er að horfa á 16 af
þessum 17 myndum. Þannig
að þetta niður-hal er hætt að
vera truflandi, það er farið að
kyrkja mann,“ segir Ísleifur.
Bíó-dagar
Græna ljóssinsÍ vikunni urðu skráðir
notendur Fés-bókar tvö
hundruð milljónir talsins.
Þetta kemur fram í færslu
hins 24 ára gamla
Zucker-berg, sem stofnaði
sam-skipta-vefinn fyrir fimm
árum ásamt tveimur
félögum sínum við Harvard
há-skóla. Að sjálfsögðu
skrifaði hann færsluna á
Fés-bók.
Hann segir að þó sé
langt í land til að allir þeir
sem gætu haft not af og
gaman af skrái sig á vefinn
og því vinni þeir að því að
fjölga notendum enn frekar.
200 milljón
notendur
Fés-bókar Sómalskir sjó-ræningjar hafa rænt að
minnsta kosti fjórum skipum og tekið yfir 60
sjó-menn til fanga á Aden-flóa í vikunni.
Banda-rískir her-menn skutu til bana þrjá
sjó-ræningja, sem héldu banda-rískum
skip-stjóra í gíslingu. Ræningjar náðu tveimur
egypskum fiski-skipum á sitt vald á mánu-dag
og rændu þeir tveimur flutninga-skipum.
Skipin eru flest frakt-skip og flytja sum þeirra
mat og aðrar nauðsynjar frá hjálpar-
stofnunum. Talið er að um 17 skip og 300
manns séu í haldi sjó-ræningja við strendur
Sómalíu. Alþjóð-legur floti her-skipa hefur svo
mánuðum skiptir sinnt þar gæslu-störfum.
Stærð Indlands-hafs gerir það nánast
ó-mögulegt að sinna þar full-nægjandi eftirliti.
Stjórn-mála-ástandið í Sómalíu hefur verið
ó-stöðugt frá því seint á níunda ára-tugnum
og einkennist af ætt-bálka-erjum.
Sjórán við
Sómalíu
Reuters
KR tryggði sér
Íslands-meistara-titilinn í
körfu-knattleik karla þegar
það sigraði Grindavík, 84:83
í odda-leik.
„Þessi Íslands-meistara-
titill er aðeins ljúfari en árið
2007. Mér finnst eins og
þetta hafi verið
„loka-verkefnið“ sem ég
byrjaði á árið 1992 þegar ég
var að þjálfa megnið af
þessum strákum. Ég er
rosa-lega stoltur af þessu liði
og þetta var frábær
úrslita-keppni,“ sagði
Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR, eftir sigurinn.
KR varð Íslands-
meistari
Morgunblaðið/Golli
Sam-kvæmt nýrri könnun
Capa-cent Gallup á fylgi
stjórn-mála-flokkanna sækja
Vinstri græn á en Sjálf-
stæðis-flokkur og
Sam-fylking dala. Sjálf-
stæðis-flokkurinn hefur ekki
verið með minna fylgi frá því í
desember er hann mældist
með 21% stuðning. Borgara-
hreyfingin hefur verið að
bæta við sig og nálgast nú
5% lág-markið. Af þeim sem
kusu Sjálfstæðis- flokkinn
2007 ætla 12,9% nú að
kjósa Sam-fylkinguna og 12%
Vinstri græn. Tæpur
fjórðungur þeirra sem kusu
Fram-sóknar-flokkinn 2007
ætlar að styðja nú-verandi
ríkis-stjórnar-flokka.
Kjósendur Vinstri grænna
eru tryggastir, 82,1% þeirra
sem kusu flokkinn í
kosningunum 2007 ætlar að
kjósa hann aftur.
Vinstri græn í sókn