Saga - 1951, Page 4
178
geirssonar, talið frá Ara á Reykhólum Þorgils-
syni (Ari r~> Þórkatla Þorsteinn —' Klængur).
Þau Yngvildur og Þorvarður hafa því einnig
framið sifjaspell ið meira með samförum sín-
um. En Klængur og Yngvildur hafa líka framið
með samförum sínum frændsemispell ið meira.
Fara engar sögur af eftirmáli um brot þessi.
Hefur sjálfsagt verið sætzt á þau, og lögrétta
hefur samþykkt þá sátt eftir beiðni biskups.
Barneign Yngvildar og Klængs hefur sjálfsagt
orðið áður en Klængur var kjörinn biskup
(1151). Dóttir þeirra Yngvildar og Klængs
var Jóra. Hennar fékk Þorvaldur Gizurarson
í Hruna, og hefur sá ráðahagur tekizt fyrir
1185.J) En óvíst, hversu löngu fyrir það ár
þau hafa gengið að eigast. Klængur biskup var
þá sennilega látinn, dó 1176.1 2) Jói*a er ef til
vill fædd nál. 1150, og hefur sennilega verið
heldur eldri en Þorvaldur, sem lézt 1235, og
mun varla fæddur fyrr en litlu fyrir 1160.
Þau Þorvaldur og Jóra áttu fimm sonu (Guð-
mund, Klæng, Björn, Einar og Teit).3) Jóra
andaðist 1196.4 5)
Eftir því, sem sagan segir, voru einhverir
meinbugir á hjónabandi Þorvalds og Jóru. —
„Þeim var meinuð samvista af kennimönn-
um“,s) segir sagan. Meinbugir þessir ættu að
hafa verið fólgnir í frændsemi, mæðgum eða
guósifjum svonefndum milli þeirra. Ættfræð-
1) Sbr. Sturl. I. 230.
2) Bps. Bkmf. I. 419, Annálar.
3) Sturl. I. 60.
4) Bps. Bkmf'. I. 449.
5) Sturl. I. 230.