Saga


Saga - 1951, Page 17

Saga - 1951, Page 17
191 1703 var gefið út, en fyrri tíma ættfræðingum var vorkunn, að þeim tækist það ekki, með því að þessar sjaldgæfu tilviljanir urðu til þess að rugla þá: Á síðari hluta 17. aldar eru tveir lögréttu- menn alnafnar úr Hegranesþingi, sem heita Þorsteinn Steingrímsson, sjaldgæfu nafni, og hugðu menn hafa verið einn mann. Sonur annars átti systur hins. Sonur þeirra hjóna var Ólafur bryti á Hólum, sem menn vissu að var náskyldur Steini biskupi Jónssyni, en þess- ir menn voru þeir, er einna mest bar á í ætt- inni. Mæður brytans og biskups voru báðar Steingrímsdætur og Þorsteinn lögréttumaður Steingrímsson var móðurbróðir beggja. Hafa menn þá gengið að því vísu, að þeir væru systrasynir. Um ætt Steingríms hins fyrra. 1 líkpredikun, er sira Jón Þorleifsson dóm- kirkjuprestur á Hólum hélt við greptran Steins biskups, segir, að móðir biskups hafi verið Guðrún Steingrímsdóttir, en móðurmóðir hans hafi verið Guðlaug Þorsteinsdóttir, sem átti Gunnlaug Erlendsson „góðfrægan mann að vitsmunum og velgengni“. Ekki er hér getið Steingríms, afa biskups, sem hefur verið fyrri maður Guðlaugar, og er það nokkuð furðulegt. Líklegast er, að hann hafi ekki orðið gamall maður og hjónaband Guðlaugar og Gunnlaugs hafi orðið lengra en hennar og Steingríms. Þó er enginn vafi á því, að þau hafa verið gift og átt saman a. m. k. 5 börn. I ómaga- dómi dæmdum á Syðri-Ökrum í Blönduhlíð

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.