Saga


Saga - 1951, Page 32

Saga - 1951, Page 32
206 ekki hafa verið löggalli á stefnuvætti hans. Það sést, að þetta hafa dómendur haft í huga og hefur ekki farið fram hjá þeim, með því að neðan við dóminn í dómabókinni er vitnað í lagaákvæði Jónsbókar um þetta atriði og það beinlínis skrifað upp þar. Móðurmóðir Ingi- bjargar var Ragnheiður Sigurðardóttir klaust- urhaldara á Reynistað Jónssonar Irm. á Sval- varði Magnússonar. Afkvæmi systkina hennar mun allt vera svo kunnugt, að fullyrða megi, að Steingrímur sé ekki meðal þess. Þá verður ekki annað rökrétt ályktað, en að Steingrímur hafi verið kominn af einhverju systkina sira Sæmundar Kárssonar og þá þre- menningur við konu sína, sem var sonardóttir Margrétar systur sira Sæmundar, svo sem síðar segir. Hlýtur þá móðurmóðir, föðurmóðir eða föðurfaðir Steingríms að hafa verið syst- kin sira Sæmundar, og er ekkert vitanlegt, sem mælir gegn því annað en frændsemi þeirra hjónanna, en til hjúskapar í þremennings- frændsemi þurfti þá konungsleyfi. Slík leyfi fengust þá ætíð, og er ekki að marka, þótt nú finnist ekki gögn um leyfi til hjúskapar Stein- gríms og Sólveigar konu hans. Freisting væri að ætla, að dómurinn víki að frændsemi Ingibjargar Sigurðardóttur og Sól- veigar Kársdóttur konu Steingríms, en hún er kunn úr ættatölum. Mægðir höfðu sama gildi samkvæmt Jónsbók sem frændsemi í þessu efni. En þegar á það er litið, að dómurinn telur Steingrím og Helga ólöglega stefnuvotta vegna skyldleika við konu stefnandans, má ekki ætla sýslumanninum og dómendum þá ónákvæmni að tala um „þremennings skyld-

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.