Saga - 1951, Blaðsíða 33
207
semi“ Steingríms og Ingibjargar, ef þeir eiga
við þremenningsfrændsemi Ingibjargar og konu
Steingríms.
Ættatölur telja Steingrím hafa búið á Hofi
í Lýtingsstaðahreppi, en einnig er hann talinn
hafa búið á Svaðastöðum í Viðvíkursveit (Lbs.
1434, 4to). Síðast mun hann hafa búið í Blöndu-
hlíðarhreppi, og þar hef ég séð hans síðast
getið 30. maí 1679.
Kona Steingríms þessa var Sólveig, 70 ára
1703, á Hofstöðum í Viðvíkursveit, Kársdóttir
b. í Vatnshlíð Arngrímssonar. 27. sept. 1634
gengur dómur í Bólstaðarhlíð um arf eftir
Arngrím sál. Ljótsson. Er þar getið sona hans
þriggja: Kárs, Þorvalds og Arnljóts og móður
Kárs. og sennilega hinna líka, er Margrét hét.
Þetta kemur allt vel heim við ættartölur, sem
telja móður Kárs hafa verið Guðrúnu eða
Margréti Kársdóttur systur sira Sæmundar í
Glaumbæ. Sira Sæmundur dó 19. júlí 1638
82 ára. Margrét móðir Kárs gæti vel verið
fædd um 1560 og verið rúmlega sjötug 1634.
Arngrímur faðir Kárs er vafalaust sonur Ljóts
þess Arngrímssonar, sem 1564 gerir próventu-
samning við Jón son sinn (D XIV, 310) og
telur sig þar systurson sira Gottskálks Jóns-
sonar í Glaumbæ. Ljóts er getið 1536, enda
ftiun hann ekki vera fæddur löngu eftir 1500,
er Jón sonur hans er fullorðinn 1564.
Faðir Ljóts er vafalaust Arngrímur Ljóts-
Sen, sem var í Sveinsstaðareið með Teiti lög-
nianni Þorleifssyni (D IX, 70), en móðir hans
hefur verið dóttir Jóns sýslum. á Geitaskarði
Einarssonar. Faðir Margrétar og sira Sæmund-
av var Kár Sæmundsson lögsagnara í Þing-