Saga - 1951, Page 38
212
sá átti Þorstein fyrir son, en sonur þess
Þorsteins var sira Sæmundur í Garpsdal.
Espólín og Steingrímur biskup nefna báð-
ir þessa Þorsteina Sigurðssyni, sem gerðir
eru að einum manni í Ættum Skagfirð-
inga, en gera hvorugur tilraun til að
setja samband á milli þeirra. f mann-
talinu 1762 býr enginn Þorsteinn Sig-
urðsson í Skagafirði, en þá býr Anna
Tómasdóttir, ekkja Þorsteins föður sira
Sæmundar í Garpsdal, á Brúnastöðum í
Tungusveit. Steingrímur biskup hefði án
efa getið þess, ef sira Sæmundur í Garps-
dal hefði verið að 3. og 4. við hann og
því tel ég, að tilgátan í Ættum Skag-
firðinga hafi ekki við rök að styðjast.
Hitt tel ég sennilegast, og raunar aug-
ljóst, að síðari maður Steinunnar Stein-
grímsdóttur hafi verið Sigurður Gíslason,
sem 1714 býr á Hofsstöðum í Viðvíkur-
sveit, sæmilega góðu búi á þeirra tíma
vísu. Sigurður þessi er vafalaust sá, sem
1703 er 40 ára vinnumaður á Ytri-Brekk-
um í Skagafirði, a. m. k. er ekki um
annan Sigurð Gíslason að ræða í Skaga-
firði 1703, en hann gæti t. d. verið sonur
Gísla Arngrímssonar bróður Sigríðar
móður Þuríðar Sigmundsdóttur húsfreyju
á Syðri-Brekkum 1703.
Börn Steinunnar og Jóns fyrra manns
hennar eru áður talin, en börn hennar og
Sigurðar hafa verið:
aa) Þorsteinn, fyrrnefndur, faðir Sig-
urðar, sem átti Guðfinnu Hjálms-