Saga - 1951, Qupperneq 71
245
mundar að taka hann beinlínis af lífi dómlaust,
því að þeir þurftu ekki að hræðast það, að nokk-
ur mundi reyna að frelsa hann úr greipum
þeirra. Kristján skrifari hefur gert Jón biskup
Arason ódauðlegan og aflað honum óskiptrar
samúðar allra íslendinga.
í 10 köflum rits síns rekur Guðbrandur æfi
Jóns biskups og athafnir í tímaröð — Teitsmál
eru þó til gleggra yfirlits rakin sér — allt til af-
tökudags. Veitir rit Guðbrands stórum glöggv-
ari skilning á fjölmörgum atriðum en rit lút-
erskra manna, sem full von er til, með því að
Guðbrandi liggur svo margt í augum uppi, er
katólskan kirkjurétt og kirkjumálefni varðar,
en lúterskir sagnamenn vita ekki eða skilja ekki
jafn vel. Guðbrandur er gagnrýninn á heimild-
ir, eins og góðum sagnaritara samir, enda reyn-
ist honum sem flestum öðrum, er arfsagnir og
munnmæli athuga, að slíkar heimildir eru mjög
ótryggar. Er vel, ef einhver sannleiksneisti er
í þeim. Ýmis konar sagnir um Jón biskup Ara-
son eru sömu marki brenndar, eins og Guð-
brandur sýnir Ijóslega. Til dæmis um þetta er
sögnin um fátækt foreldra Jóns biskups. Sýnist
ekki vafamál, að sú sögn er skökk eða geymir
að minnsta kosti miklar ýkjur.
Of langt mál yrði hér, ef fara skyldi að nokkru
ráði í hvern kafla og hvert atriði sögu Jóns
biskups Arasonar. Sérstaklega skal þó vekja at-
hygli á kaflanum um biskupskjör hans og skipti
þeirra ögmundar biskups í því sambandi. Verð-
ur hlutur ögmundar biskups þar ófagur, en Jón
biskup hafði þar málaefni góð og gekk með full-
an sigur af hólmi. En einn er sá þáttur í lífi Jóns
biskups, sem varpar dökkum bletti á minningu