Saga - 1951, Blaðsíða 78
252
yfirleitt vandað, þó að lítils háttar hnökra megi
á því finna. En hver syndir fyrir öll slík sker?
Bókin skyldi koma út fyrir tiltekinn dag, og
höfundi var því skammtaður tími, sem mun
hafa reynzt full naumur. Ber bókin þess nokk-
urar minjar, en varla slíkar, að gildi hennar að
efni til rýrni nokkuð verulega vegna þess.
Guðbrandur Jónsson hefur auðgað sögubók-
menntir vorar með riti sínu um Jón biskup Ara-
son. Það geymir nýjar og sjálfstæðar rannsókn-
ir og mat á þeim atriðum siðaskiptatímans hér
á landi, sem Jón biskup Arason varða. Og á höf-
undur miklar þakkir skilið fyrir það. Var hann
og sæmdur fyrir ritið verðlaunum úr Gjafasjóði
Jóns Sigurðssonar, og er hann vel að þeirri
sæmd kominn.
Einar Amórsson.
Dr. Björn Þórðarson: Síðasti
goðinn. Prentsmiðja Austur-
lands. Rvík 1949.
Dr. Björn Þórðarson var snemma góður sögu-
maður í skóla, eftir því sem um menn á hans
aldri þá gerðist. Og doktorsbók hans, Refsivist
á fslandi, Rvík 1926, sýndi það tvímælalaust,
að þar var liðtækur maður á ferðinni. Jafnhliða
embættisönnum sínum, sem mikils tíma kröfð-
ust, hóf hann umfangsmikla rannsókn um að-
draganda að fangahússgerð og framkvæmd
refsivistar á íslandi, þar sem óprentaðar heim-
ildir hlutu að verða aðalgögnin. Leysti dr. Björn
verk þetta af hendi með mikilli prýði. Síðan
hefur hann birt ýmsar ritgerðir um efni úr sögu