Saga


Saga - 1951, Page 80

Saga - 1951, Page 80
254 ma) kirkjunnar. Oddur er síðan veginn í Geld- ingaholti í Skagafirði snemma árs 1255. Hann fær ekki einu sinni prests fund fyrir andlát sitt, enda þótt hann beiddist þess „í guðs nafni“, og er síðan grafinn utan kirkjugarðs. Má nærri fara um það, hvernig inni göfugu og stórlátu ekkju hans og náfrændum hafi þótt þetta hlut- skipti hans. Að Oddi föllnum hefst aðalsaga Þorvarðar bróður hans. Hefnd var þá enn sið- ferðileg skylda, enda var ólíklegt, að málinu yrði haldið til laga, af því að við ofurefli var að etja. Sýnir Þorvarður bæði harðfylgi, dugnað og mikla forustuhæfileika um framkvæmd hefndanna. Kemur nú Þorgils skarði og Sturla Þórðarson til sögunnar með Þorvarði. Þorgils, sem var dyggur þjónn Hákonar gamla Noregs- konungs og óbilgjarnt hrottamenni í aðra rönd- ina, undirgengst að veita Þorvarði hjálp til hefnda, gegn styrk af hendi Þorvarðar til þess að ná völdum í Skagafirði. Tekst hvort tveggja, að koma fram hefndum og ná Skagafirði undir Þorgils. En Þorvarður, sem löglega heimild hafði á goðorðum í Eyjafirði, fær þar ekki við- töku, og má Þorgilsi þar víst nokkru um kenna. Fer Þorgils með vopnuðu liði til Eyjafjarðar, að öllum líkindum til þess að ná héraðinu undir sig (og konung), en bægja Þorvarði frá til hlít- ar. Þorvarður hefur séð, hvað í vændum var, og verður fyrri til, ræðst að Þorgilsi, þar sem hann er að gistingu á Hrafnagili og fellir hann (1258). Þorvarður hefur sætt ómildum dómum sagnamanna fyrir þetta verk sitt. En um höfuð Þorgilsi hefur vafizt hálfgerður helgihjúpur, með því að hann hafi verið drengur góður og saklaus veginn af manni, sem átti honum mikið

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.