Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 9

Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 9
ÓHLÝÐNI OG AGALEYSI Á ÍSLANDI Á 17. OG 18. ÖLD Kristján V. mun hafa verið allmikið upp á kvenhöndina eins og algengt var á með menn í hans stöðu á þessum tíma. Það var hins vegar harðbannað aö hafa kvensemi hans í flim- tingum eins og Jón Hreggviðsson og Jón Nikulásson fengu að reyna. þessu „mjög hrumur“ en þrátt fyrir það reið hann af stað með Ara sýslumanni og fleir- um áleiðis til Vestfjarða. En hann náði ekki að fylgja Ara eftir heldur týndist einhvers staðar í Þingvallahrauni.15 Ekki tóku allir dauða Jóns þegjandi og hljóðalaust. Félagi hans einn Ásmundur Jónsson reiddist mjög þegar hann frétti af hýðingunni. Hann hélt því fram að Ari sýslumaður og Gunnlaugur Jónsson lögréttu- maður hefðu sótt Jón upp á Mosfellsheiði eftir að alþingi lauk, bundið hann upp á hest, fært hann að kaganum, afk- lætt og látið kagstrýkja dóm- laust þar til hann dó. Ásmund- ur var tekinn fastur og hýddur á alþingi árið 1699 fyrir „ókristilega, blygðunarlausa og skammarlega lygi og fjöl- mælgi“ upp á Christian Muller amtmann, Pál Vídalín varalög- mann, sýslumennina Jón Eyj- ólfsson, Jón Sigurðsson, Ara Þorkelsson og Gunnlaug Jóns- son lögréttumann. Ásmundur sakaði þessa menn um að bera ábyrgð á dauða Jóns. Hann var einnig ákærður fyrir aö hafa árið 1694 riðið við ní- unda mann heim til Magnúsar Jónssonar lögmanns í þeim til- gangi að drepa hann. Magnús hafði nokkrum árum áður dæmt Ásmund í útlegð. Þeir fundu Magnús ekki því hann hafði látist skömmu áður. Á Ásmundur þá að hafa sagt: „Svo sem guð á mig ætluðum við það að gera.“ Auk hýð- ingarinnar var Ásmundur dæmdur í útlegð að nýju.16 Ekki losnuðu menn þó við hann því hann strauk úr haldi. Hann var þá gripinn aftur og hengdur á alþingi 14. júlí árið 1701.17 Yfirvöld voru stöðugt að kvarta undan letingjum og flökkurum, en þeir Ásmundur Jónsson og Jón Guðmunds- son hafa sjálfsagt verið dænti um slíka menn. Sú spurning vaknar hvort hér hafi verið á ferðinni ribbaldar sem hafi reynst yfirvöldum og almenn- ingi hættulegir? Ljóst er að töluvert var um flakkandi fá- tæklinga sem sumir hverjir lifðu hálfgerðu útilegumanna- lífi. í Bessastaðapóstum frá 1685 var kvartað undan flökk- urum sem „hræði mat og drykk út af fátækum og veik- stöddum almúga búandi fólks.“18 í harðindum eins og til dæmis um aldamótin 1700 Islenskir prestar voru misjafnlega vel af guði geröir. Það var að minnsta kosti algengt að þeir tentu í illdeilum viö sóknarbörn sín og þá voru ekki alltaf spöruð stóru orðin. gekk yfir alda þjófnaða. Þetta má glögglega sjá af dómabók- um frá þessum tíma. Næstum því hver einasti þjófur sem þá var hýddur, brennimerktur, markaður eða hengdur hafði stolið sér til matar. Til dæmis var Eyjólfur Jónsson, marg- dæmdur flakkandi þjófur, hýddur á héraðsþingi að Hvammi á Galmanströnd 21. júní 1701 fyrir að hafa stolið skyri, mjólk, smjöri, hempu, skó og dúk. Auk þess var hann hýddur fyrir að hafa haldið sig frá sakramenti í fjögur ár.19 Yfirvöld höfðu eins og nærri má geta miklar á- hyggjur af óhlýðni þessarar tegundar. Á héraðsþingi að Grund í Svarfaðardal árið 1697 spurði hreppstjórinn Erlendur Jónsson hvað gera ætti við þá léttferðugu umhlaupings stráka, sem með stelandi hendi um sveitina hlaupi og sjúgi kýr manna, at- vikast soleiðis, nær sann- bevísast aungvan veginn strafflaust afgangi, lieldur að hreppstjórar vel athugi sína skyldu hér úti og svoddan ótilheyrilegt athæfi ei strafflaust framvegis lið- ast, undir sektum sem þar við liggja eftir lögum.20 Þjófnaðir voru svo margir á þessum tíma að sumstaðar virðist sem yfirvöld hafi hrein- lega gefist upp við að elta þjófa uppi. Á héraðsþingi að Gaulverjabæ í Flóa 17. desem- ber 1704 kom fram að þá um sumarið og haustið hefðu margir menn í Bæjarhreppi tapað sauðum og fjármunum. Síðan voru kallaðir fyrir níu menn og spurðir hvort þeir væru „að nokkru leyti rigtaðir af varmennsku, hvað þeir nú allir játa að þeir þetta um sig heyrt hefðu.“ Ekki tókst að sanna þjófnað á nokkurn þessara manna svo málið var látið niður falla.21 Þjófnaðir og flakk voru ó- hlýðni ekki síður en orðbragð og móðganir. Veraldleg yfir- völd refsuðu þjófum yfirleitt 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.