Ný saga - 01.01.1990, Side 61

Ný saga - 01.01.1990, Side 61
mál. Kviðdómurinn, sem sam- anstóð af ósköp venjulegu fólki, kveður upp dóm þar sem hinir ákærðu eru sýknaðir vegna skorts á full- gildum sönnunum. Petta er frábært dæmi um vel heppnaða samvinnu atvinnu- manna í kvikmyndaiðnaðinum og lærðra sagnfræðinga. Eg er ekki þeirrar skoðunar að sagnfræðingar eigi að forðast skáldskapinn en eins og alltaf þegar um hina flóknu fjöl- miðla nútímans er að ræða þá skilar samstarf við annað fólk bestum árangri. TEXTINN TRUFLAR! Hvaða áhrif hefur efnismeðferð sem þessi á söguskoðun áhorfenda? Eg held að heimildarmyndir og leiknar myndir leiði ekki af sér ólíka söguskoðun; allt rennur saman í eina heild. Hins vegar getur verið erfitt að meta hinar ólíku heimildir. í þessu tilviki voru t.d. þjóðvísur notaðar sem sönn- unargögn en þær sýna hvernig alþýðan hefur túlkað atburðina í aldanna rás. Þarna birtist í raun söguskoðun þjóðarinnar í sjö hundruð ár. Þættirnir höfðu mikil áhrif á fólk. Bæði vöktu þeir brenn- andi áhuga margra á sögu og sýndu auk þess fram á hversu margt er líkt með sagnfræðilegri heimildarýni og a,ðferðum rannsóknarlögregl- unnar. Þeir sem fylgdust með lærðu geysilega mikið um aðferðafræði sagnfræðinnar á skemmtilegan og eftirminni- legan hátt. Við gerð hreinræktaðra heimildarþátta getur sagnfræð- ingurinn verið leiðandi aðili. Ekki tekst þó alltaf jafn vel til. Sumir gangast upp í því að vera leikstjórar án þess þó að hafa nægilega þjálfun í list- rænum vinnubrögðum þannig að útkoman verður hálfmis- heppnuð. Svo eru til sagn- fræðingar sem leggja allt kapp á að framreiða sannleikann, kynna heimildir og fleira í þeinr dúr. Þeim tekst oft að gera gagnlega þætti, sem jafn- framt eru býsna leiðinlegir. Loks eru það þeir sem byrja á því að skrifa handrit og snúa sér svo að því að myndskreyta það. Þeir verða sér úti um nryndefni, teygja það og toga og klippa þannig að það falli að handritinu. Allt er gert til að hin upphaflega frásögn standi. í raun er það textinn sem truflar, hin skriflega frásögn sem lesin er upp drottnar yfir myndefninu. Mistökin felast í því að alltof oft láta sagnfræðingar hið ritaða mál ráða ferðinni þannig að myndefnið drukkn- ar í orðum. Nauðsynlegt er að átta sig á því frumatriði að kvikmyndir og sjónvarp eru ekki sérlega heppilegir miðlar til að koma á framfæri flóknu sögulegu samhengi. Þetta eru sjónrænir miðlar sem duga ágætlega til að sýna hvernig hlutirnir litu út og sviðsetja atburði en henta ekki eins vel til þess að greina orsakir og afleiðingar og fjalla um liuglæg atriði. Þess vegna er ekki nóg að styðjast við þá reynslu og þjálfun sem sagnfræðileg ritstörf hafa fært manni og halda að hægt sé að yfirfæra það á hina sjónrænu miðla. Þvert á móti. Nauðsynlegt er að taka mið af myndunum og vekja þær til lífs sem sögulegar heimildir í samspili við áhorfandann. Myndefnið á að sitja i öndvegi. Eitt lykilatriði til viðbótar eru áhrifin sem skapast þegar hljóðið kemur til sögunnar. Ekki orðin heldur tónlistin og náttúruhljóðin. Kvikmyndin er „Gesamtkunstwerk", heildar- list, sambærileg við óperuna, jafnerfið viðfangs en lík að allri uppbyggingu og jafn frá- bær þegar vel tekst til. Hún nær ekki til lyktarskyns og þ- reifiskyns fólks en höfðar því meir til sjónar og heyrnar. Hið ritaða mál er allt annar hand- leggur þar sem reynt er með orðum að framkalla ákveðin Óttast sagntræöingar tæknina? Eitt brýnasta verkefni þeirra á komandi árum er að laga sig aö breyttum aðstæðum og takst á við þá tækni sem móta fjölmiölun nútímans. Viö gerð hreinræktaðra heimildarþátta getur sagnfræöingurinn verið leiðandi aðili. Ekki tekst þó alltaf jafn vel til.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.