Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 43

Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 43
ROMM ER SU TAUG ÚR SVEITALOFTINU Á „MÖLINA“ Þeir sem voru upprunnir utan höfuðstaðarins og höfðu alist upp við aðstæður sem ein- kenndu fremur sveitasamfé- lagið en hið nýja þéttbýlis- þjóðfélag áttu oft erfitt með að fóta sig í bænum um miðbik 20. aldar. í fyrsta sinn sem sumir komu til bæjarins úr hreinu sveitaloftinu virtist þeim jafnvel frágangssök að draga andann, en tóku síðan eftir því að þetta gerðu allir aðrir og þá hlaut það að vera gott!6 En innflytjendanna beið stórt hlutverk og bærinn bar „þess gleggri merki en nokkur annar staður hérlendis, að í- búar ... [hans] eru fólk, flutt þangað frá ólíkum byggðum, alið upp við ólík skilyrði og ó- líka lífsbaráttu. Sérkenni þess speglast margvíslega í athöfn- um þess, fasi og samfélags- hátturn," var ritað seint á sjötta áratugnum, og bætt við: „Það er þetta fólk sem markað hef- ur einkenni höfuðstaðarins, framfarir hans og hið dug- mikla framtak sem hefur verið og er einkenni Reykjavíkur. Það hefur gert Reykjavík að byggilegasta stað landsins."7 Innflytjendum gekk þó misvel að semja sig að nýjum að- stæðum. Einstaka mönnum tókst það aldrei, aðrir virtust óánægðir með sitt nýja hlut- skipti. Þeir sem áttu erfitt með að fóta sig á mölinni og skjóta þar rótum reyndu að halda hópinn eftir mætti. Þeir leituðust við að halda í upp- runa sinn og tengsl við átthag- ana - sveitina eða þorpið. Jafnvel fólk sem hafði flutt ungt til bæjarins leit á sig sem eins konar gesti þar og hend- ingar úr fornu latnesku kvæði eftir skáldið Ovidius, í þýð- ingu Sveinbjarnar Egilssonar, ómuðu oft í eyrum manna á fimmta og sjötta áratugnum: „Römm er sú taug, sem rekka dregur föðurtúna til.“ Á þessu tímabili döfnuðu átthagafélög Eftirsjá! Margir aðfluttir Reykvíkingar söknuðu sveitalífsins og leituðust við að halda í uppruna sinn. Margir áttu búfé í heimahögum sem þeir reyndu að sinna eftir bestu getu. í Reykjavík. Starfsemi þeirra var oft fjölbreytt og vel skipu- lögð og fjöldi félagsmanna skipti þúsundum þegar þau voru öflugust. Félagsstarf innflytjenda í Reykjavík var ekki nýtt af nál- inni um miðja öldina en á fyrri hluta hennar var það að mestu tilviljanakennt og lítt markvisst. Ein ástæða þess að skipulögð starfsemi átthagafé- laga átti vart upp á pallborðið hjá aðfluttum Reykvíkingum framan af öldinni, eða var ekki nauðsynleg, átti m.a. ræt- ur í því að á þeirn tíma hafði þéttbýlið í Reykjavík og lífið í bænum ekki tekið á sig þá mynd sem síðar varð og fólki hefur naumast fundist það vera ýkja fjarri heimahögun- um. Umgjörð bæjarins ein- kenndist a.m.k. fremur af hátt- um sveitasamfélagsins en hinu nýja þéttbýlisþjóðfélagi, slíkur var uppruni bæjarins.8 Og böndin við landsbyggðina voru sterk.9 Tengslin við upp- runann rofnuðu síður í slíku umhverfi. Undir lok fjórða áratugar fór fólk að skynja þéttbýlið í Reykjavík á annan hátt en áður. Bærinn var að breytast, samfélag ólíkt því sem ráðið hafði ríkjum á ís- landi að ryðja sér til rúms. Menn voru tvístígandi, vissu ekki almennilega hvernig við átti að bregðast.10 Er þéttbýlið styrktist í sessi í síðari heims- styrjöldinni og eftir að henni lauk gerðust breytingarnar hratt. lnnllytjendur reyndu að halda í þann þráð sem tengdi þá við upprunann og stofnun átthagafélaga og skipulögð starfsemi innan þeirra varð hentugt tæki til þess, nokkurs konar tákn um það að fólk hafði þörf á sambandi við átt- hagana.11 Sú menning sem það þekkti og hafði drukkið í sig með móðurmjólkinni virt- ist í hættu og tengslin við for- tíðina að bresta. Vernda þurfti hina þjóðlegu menningu sveit- anna og Reykjavík ein og sér var ekki talin traustsins verð í þeim efnum. Því þurfti átt- Umgjörð bæjarins ein- kenndist a.m.k. fremur af háttum sveitasam- féiagsins en hinu nýja þéttbýiisþjóðféiagi, slíkur var uppruni bæjarins. 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.