Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 90

Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 90
t Sagnfræðiverk og skáldverk eru ólík aö eðli og útiloka hvort annað. rekja má aftur til Aristótelesar, eru að list sé einhvers konar eðlislægt náttúruferli sköpunar. Listin fullkomni það sem sé ó- fullkomið í náttúrunni, hún fullkomni sköpunarverkið svo að það fari jafnvel fram úr náttúrunni. Listaverk hafi því einhvers konar hreinsunar- mátt, þau endurleysi fólk til sálarfriðar úr nauð andstæðra ástríðna og mótsagnakennds veruleika. Þannig verði list skemmtileg, lifandi, hnittin og sönn. En í nútímasamfélögum eru menn alltaf að skapa og framleiða og komast fram úr náttúrunni. Kannski er eitt- hvað af þeirri sköpun listaverk í einhverra augum, en ósköp er samt erfitt að að hugsa sér það brölt almennt sem sérstak- lega listrænt og enn síður sér- staklega sagnfræðilegt. Kannski eru líka allir menn listamenn. Þó að postulinn segi að vís- indin belgi út (scientia inflat, l.Kor.8,1)) fæ ég ekki betur séð en að vísindaleg sagn- fræði, sem felur í sér sam- viskusamlega leit að stað- reyndum og tilraunir til að túlka þær í því skyni að finna út hvað gerðist á fyrri tíð, sé ólíkt minni belgingur en sú ummyndun staðreynda og veruleika sem felst í trúar- brögðum og skáldskap. Ef til vill var það ekki alveg út í blá- inn hjá Platóni gamla að telja skáldin fjarri sannleikanum og kalla þau „skuggaskáld og eft- irhermur“. Nútímasagnfræði hefur með kröfum sínum um siðferði og heiðarleika gagnvart viðfangs- efninu og fræðigreininni vald- ið nokkurri umhugsun og fyr- irvörum hjá Halldóri Laxness. Mér hefur alltaf þótt vænt um fyrirvara hans aftan á titilblöð- um þríverksins um íslands- klukkuna, sem út kom á árun- um 1943-1946. í fyrstu bókinni lætur Halldór þess getið að hún sé „ekki „sagnfræðileg skáldsaga", heldur lúta persón- ur hennar, atburðir og stíll ein- vörðúngu lögmálum verksins sjálfs.“ Og í síðustu bókinni segir: „Einsog í tveim fyrri bókum er „sagnfræðin" einnig í þessari beygð undir lögmál skáldverksins.“ Mér sýnist „lögmálið“ ! þessum línum geta haft sömu merkingu og t.d. „duttlungar höfundar“. í skáldskap og listum virðist nefnilega margt það leyft sem ekki er leyfilegt í vísindalegri sagnfræði. Ykjur, staðleysur og afkáraskapur, sem engum þyk- ir tiltökumál að skáld bregði fyrir sig, eru t.d. fyrirbæri sem samrýmast ekki sagnfræði. Slík fyrirbæri geta þó verið við- fangsefni sagnfræðinnar þar sem þau eiga sér sögulega veru. íslandsklukkan er merki- legur vitnisburður (heimild) um íslenskan hugsunarhátt, af- stöðu, andlegt líf og margt fleira um miðja 20. öld. Höf- undur verksins veit það og skriftar því á þennan hátt gagnvart sagnfræði og fræði- legu siðferði hennar lesendum sínum til glöggvunar. Það er ekki sagnfræðingurinn sem viljugur gengur með hermilist inn í skuggaveröld heimspek- ingsins. Þegar unnið er að tilteknu ritverki um fyrri tíma og slegið af kröfum vísindalegrar sagn- fræði hættir viðkomandi verk að vera sagnfræði. Þar með er verkið ekki endilega orðið listaverk eða skáldverk eins og stundum er talið. Það getur allt eins verið t.d. afbakanir eða hlutdrægni sem hópur manna trúir á eða enginn kærir sig um nema höfundurinn og flestir láta afskiptalaust, nema einhverjum dytti í hug að sparka í það eins og prest- inum í Austfjarðaþokuna á kirkjuhlaðinu forðum tíð. Sagnfræðiverk og skáldverk eru ólík að eðli og útiloka hvort annað. Þau eiga ekki landamæri hvort að öðru því að milli þeirra liggur vítt svið skynreynslu samtímans í stöðugri verðandi. Markmið og aðferðir sagnfræðinnar eru í talsvert föstu formi en mark- mið lista virðast breytileg. Saga og söguvitund eru ríkir þættir í samtímamenningu og viðhorf- um og hið sama er að segja um skáldskap og listir. Saga og listir eiga því samfundi á þeim mikla vettvangi. Það er ekki nema eðlilegt að á ýmsu gangi í þeirri sambúð. 4) 4 I* 88
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.