Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 77

Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 77
FÁTÆKT Á ÍSLANDI FYRR Á TÍMUM grið á löglegu heimili, gæti sá hinn sami ekki stofnað heimili sjálfur. Á þann hátt tengdist griðmaðurinn eða griðkonan framfærslurétti hreppsins. En vistarbandið gegndi einnig því hlutverki að hafa skipulag á búlausu fólki, tryggja bændum ódýrt vinnuafl og hafa stjórn á fólksfjöldanum i skjóli þess ó- frjálsa einlífis, sem vinnu- mennskan hafði í för með sér.3 Vinnuhjú höfðu lág laun. Þau breyttust mjög lítið frá 14. til 19- aldar, árslaun vinnu- manna voru |:>á venjulega 60 til 120 álnir auk fæðis og klæða. Vinnukonur fengu oft- ast aðeins fæði og klæði fyrir vinnu sína. Ársuppeldi barns kostaði venjulega 120-180 álnir árlega.4 Því er ljóst að það braut gegn samfélagsreglum og hagrænum viðbúnaði ef vinnufólk eignaðist börn. Með öðrum orðunt: Vinnuhjúastétt- in varð að lifa í ófrjálsu einlífi. Magnús Stephensen, Confer- enceráð og Jústíaríus, lét sögu- persónu sína Helgu Hjálmars- dóttur ræða hlutskipti ógiftra vinnuhjúa á mjög svo afger- andi hátt í riti sínu Rœður Hjálmars á Bjargi, sem út kom árið 1820. Hjálmar á Bjargi, aðalsögu- persóna bókarinnar, er gildur sjálfseignabóndi á 20. hund- raða jörð. Hann ákveður að fræða syni sína þrjá um hinar ýmsu stéttir og skýra frá því hvaða framtíð hann liafi á- kveðið hverjum og einum. Fræðslan fer fram á þann hátt að Hjálmar heldur yfir þeim ræður miklar, standandi uppi á hól. Einstaka sinnum fá syn- irnir að bera fram spurningar af stakri kurteisi. Hjálmar á einnig dætur þrjár en við þær hefur hann ekkert að segja ó- tilkvaddur, en þær tilheyra þó áheyrendahópnum sem og annað heimilisfólk. Þegar Hjálmar hafði rætt all lengi um giftingarvandamál sonanna, getur ein dóttirin Helga, ekki lengur staðist mátið og ber fram spurningar: „Helga gall pá við og mælti: Sé þetta vandræði fyrir hann Jón Frænda (það er bróður henn- Því er Ijóst að það braut gegn samfélags- reglum og hagrænum viðbúnaði ef vinnufólk eignaðist börn. Með öðrum orðum: Vinnu- hjúastéttin varð að lifa í ófrjálsu einlífi. Sigurður Guttormsson tók þessa mynd um 1930 og nefndi hana „gamall bóndi á rúmi sínu að loknum snæöingi". ar), hvað má þá ecki segja um ockur, Stúlkna garmana, sem sjaldan fáum valið um oss geðfelda menn, eins og þeir Piltar um konur, en verðum margar seldar, rétt sem fénað- ur, undir misjafna yfrirdrottn- un, opt þess fyrsta rudda- mennis, sem býðst, hversu illa sem ega kann við vort geð, af ótta fyrir, að vær annars visn- um strax upp til kerlinga... ísjárvert því að gefa síg út í þær (þ.e. giftingarnar). en ó- frjálslegt og jafnóskemmtilegt að púla ævilangt, sem vinnu- kona, fyrir klénan kost og fatnað optast, og eckert hafa afgángs til að taka í ellinni, þá lúi, útslit og heilsubrestur að- þrengja, en mega þá varpast á miskunarlítið hreppa framfæri, sem ómagi; eða hvað lísst yður um þetta? Faðir minn!“ Hjálmar þagði stundarkorn (sem hann annars aldrei gerði), leit í gaupnir sér, en sagði:..hrigð er hjúskapur, böl búskapur, aumt einlífi og að öllu nockuð, þessvegna og, að sá þriðji eins hafa... rétt að mæla, sem telur „hollt að hugsa sig um það æfilangt, hvort leggjandi sé útí hjóna- band eður ecki.“ Það mun þó verða skemur hjá mér, ansaði Helga til, bjóð- ist mér einhverr... optar verð eg þó, sem kona, mér og verkum mínum ráðandi og í eginn kofa mínum, enn á meðan eg er annars hjú...“5 Eins og áður hefur verið get- ið var ekkert land í Evrópu með eins hátt hlutfall vinnu- hjúa af heildarmannfjölda og ísland. í töflu 3 má sjá þetta hlutfall 1703-1890. Hátt lilut- fall vinnuhjúa á 19. öld miðað við 18. öld er fyrst og fremst hægt að útskýra með lækkuðu hlutfalli sveitarómaga á sarna tíma eins og sjá má á töflu 4. Með öðrum orðum: í þessu gamla staðnaða samfélagi var það dæmi um bætt kjör fólks, þegar fjölgaði í vinnuhjúastétt- inni. Bætt kjör bænda gerði þeim kleift að ráða til sín í 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.