Ný saga - 01.01.1990, Blaðsíða 23
Guðmundur J. Guðmundsson
DIGBYBAGALLINN, ÍSLENSK LISTASMÍÐ
í VICTORÍU- OG ALBERTSSAFNINU
Sumarið 1981 var ég
staddur í London ásamt
konu minni Sigurlaugu
Magnúsdóttur. Meðal þess
sem við skoðuðum var Vict-
oríu- og Albertssafnið við
Cromwell Road. Þegar við
vorum að skoða þá deild
safnsins sem hýsir kirkjugripi
frá miðöldum kallaði Sigur-
laug í mig og benti mér á
bagal úr beini sem stóð upp á
endann í dálitlum glerkassa á-
samt nokkrum öðrum gripum.
Hjá baglinum var miði með
eftirfarandi áletrun:
Krókur af bagli. Á annarri
hliðinni er heilagur Ólafur
Noregskonungur en á hinni
hliðinni er biskup, sem ým-
ist er talið að sé heilagur
Þorlákur frá íslandi biskup í
Skálholti, heilagur Eskill frá
Strángnes, heilagur Hinrik af
Uppsölum eða heilagur Wil-
lehad frá Bremen. Bagallinn
er úr rostungstönn og á
honum eru leifar af gyll-
ingu. Gert hefur verið við
bagalinn með beini. Bagall-
inn er annað hvort norskur
eða danskur, frá miðri 14.
öld Viðgerðin er yngri. Að
láni frá hr S. Wingfield Dig-
by.1
Eins og nærri má geta þótti
okkur þetta nokkur tíðindi því
það er ekki á hverjum degi að
myndverk frá miðöldum sem
gætu verið af nafnkunnum ís-
lendingum koma i leitirnar.
Hvorugt okkar mundi eftir að
hafa heyrt talað um þennan
bagal eða lesið um hann og
einsettum við okkur að afla
frekari upplýsingar um grip-
inn þegar betra næði gæfist. í
þetta skiþti létum við nægja
að taka ljósmynd af baglinum
en aðstæður til myndatöku
voru hinar verstu og varð
myndin mjög léleg. Ekki gafst
tækifæri til að sinna baglinum
neitt frekar í þetta skipti.
Það var svo á fyrrihluta árs
1989 að Gunnar Karlsson pró-
fessor sat eitt sinn að spjalli
hjá okkur og verður þá að
orði hvort við höfum séð eitt-
hvað sem tengdist heilögum
Þorláki í borginni Lincoln á
Englandi en þar höfðum við
verið árið 1985. Gunnar var
einmitt um þessar mundir að
vinna að bókinni Samband
við miðaldir og langaði til að
birta myndir af einhverjum
hlutum eða stöðum erlendis
sem tengdust íslandi og ís-
lendingum. Við þóttumst nú
heldur en ekki góð að geta
bæði sýnt honum myndir af
kirkjudyrum sem heilagur Þor-
lákur hefur áreiðanlega geng-
ið um og einnig mynd af dýr-
lingnum sjálfum. Þetta varð til
þess að ég ákvað að athuga
bagalinn betur.
Svo vel vildi til að skömmu
eftir þetta átti Sigurlaug erindi
til London og notaði þá tæki-
færið og fór í Victoríu- og Al-
bertssafnið og bað um ljós-
mynd af gripnum. Það reynd-
ist hægar sagt en gert. Þar
sem safnið átti ekki bagalinn
máttu starfsmenn þess ekki af-
henda myndir af honum nema
með skriflegu leyfi frá eigand-
anum hr. S. Wingfield Digby.
Enginn þeirra safnmanna sem
rætt var við vissi hvar S. Wing-
field Digby væri að finna og
einhver fullyrti að hann væri
látinn.
í vandræðum mínum leitaði
ég ráða hjá Antoni Holt, hin-
um margfróða starfsmanni
myntsafns Seðlabankans og
Þjóðminjasafnsins og var hann
ekki lengi að leysa þessa
flækju. Hann fann fljótlega í
plöggum sínum tvo menn sem
hétu S. Wingfield Digby, ann-
ar var klerkur en hinn fyrrum
þingmaður. Anton veðjaði
frekar á þingmanninn vegna
þess að bróðir hans hafði ver-
ið safnvörður á Victoríu- og
Alliert. Hann ráðlagði mér
samt að hafa fyrst samband
við breska sendiráðið og
kanna hvort þeir hefðu ein-
hverjar frekari upplýsingar.
Svo reyndist ekki vera og
sendi ég því S. Wingfield Dig-
by fyrrum þingmanni bréf þar
sem ég bað um leyfi til að fá
myndir af baglinum. Anton
reyndist hafa veðjað á réttan
hest. Hr. Simon Wingfield
Digby fyrrverandi þingmaður
er eigandi bagalsins og þar að
auki sprelllifandi en bagallinn
er á ótímabundnu láni til Vict-
oríu- og Albertssafnsins. Hr.
Wingfield Digby tók málaleit-
an minni vel og skrifaði jafn-
harðan hr. Paul Williamson
safnverði í höggmyndadeild
safnsins og gaf fyrir sitt leyti
leyfi til að að ég fengi ljós-
mynd af baglinum. Ég skrif-
aði svo hr. Williamson bréf
þar sem ég bað um frekari
upplýsingar og voru þær fús-
lega veittar.
DIGBYBAGALUNN,
ÚTLTT, ALDUR OG
STÍLL
Að þessum inngangi loknum
er rétt að snúa sér að baglin-
um sjálfum. Digbybagallinn
er 22,1 cm á hæð og 12,7 cm
á breidd um krókinn. Leggur-
inn er 3 cm að ummáli. Bagall-
inn er eins og áður sagði úr
Eins og nærri má geta
þótti okkurþetta nokk-
ur tíðindi því það er
ekki á hverjum degi
að myndverk frá mið-
ötdum sem gætu verið
af nafnkunnum
íslendingum koma í
leitirnar.
Við þóttumst nú
heldur en ekki góð að
geta bæði sýnt honum
myndir af kirkjudyrum
sem heilagur Þorlákur
hefur áreiðanlega
gengið um og einnig
mynd af dýrlingnum
sjálfum.