Ný saga - 01.01.1990, Síða 68

Ný saga - 01.01.1990, Síða 68
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON ólfs Bjarnasonar á þingi 1940 þar sem hann fór höróum orðum um meinta einokun Síldarverksmiðja ríkisins og Kveldúlfs í síldarbræðslu. Sagði hann að verksmiðjurnar hefðu knúið fram óeðlilega lágt verð á síldinni til útgerð- armanna og sjómanna, en hindra hefði mátt þessa „fé- flettingu" með því að koma á fót „óháðri verksmiðju"20. Ein- ar Olgeirsson tók í sama streng og kvartaði yfir því að sjálfstæðis- og framsóknar- menn notuðu aðstöðu sína í gjaldeyris- og innflutnings- nefndunum til að bola öðrum frá úthlutun leyfa, því að þó einhverjir menn vilji koma sér upp sjálf- stæðri atvinnu á þann hátt að slá sér saman um fyrir- tæki, þá fá þeir það ekki. Ef t.d. sjómenn vilja fá að kaupa bát í þessu skyni, þá kemur gjaldeyris- og inn- flutningsnefnd til skjalanna og Sjálfstflokkurinn og neita um leyfi til þess að flytja slíka báta inn, eða efni til þeirra. Ef menn vilja koma sér upp atvinnu við iðnað, þá er sama svarið: „Nei góði, þú færð ekki þetta, því það standa ákveðnir framsóknar- og sjálfstæðis- menn nær því að fá þetta heldur en þið.“21 Hér lofuðu þeir félagar gildi samkeppninnar og lýstu sig andvíga hömlum á athafna- frelsi einstaklinganna. En þótt lesendum kunni að koma þetta spánskt fyrir sjónir þá var þessi afstaða í fullu sam- ræmi við kenningar þeirra Marx og Leníns, því þeir litu á kapítalismann sem framsækið afl svo fremi að hann hefði ekki þróast í átt til einokunar. Á hinn bóginn hefði kannski verið rökrétt að álykta sem svo, að úr því að efnahags- kerfið á íslandi hefði þróast til einokunar, þá væri bylting tímabær. En sósíalistarnir ís- lensku voru ekki svo grænir að þeir teldu byltingu á næsta leiti, enda alþjóðasinnar og gerðu sér mæta vel ljóst að ís- land væri ekki eyland nema i landfræðilegum skilningi og alþjóðleg þróun myndi ráða því hvert mál stefndu. Þá voru þeir sem kunnugt er í nánum tengslum við Moskvu og línan úr austri var sú allt frá árinu 1935 að kommúnistar á Vest- urlöndum skyldu fylkja liði með öllum andfasískum öflum og Sósíalistaflokkurinn var skilgetið afkvæmi þeirrar stefnu22. Það er engu að síður athyglisvert að sósíalistar töldu það nærtækast við ríkjandi að- stæður að blása nýju lífi í kap- ítalismann. En það ber einnig að athuga að íslenskir sósí- alistar voru einnig börn hins vestræna iðnaðarsamfélags og gildismat þeirra bar sterkan keim af þeirri „neysluhyggju“ sem var afurð þess. Þannig sagði Þjóðviljinn í júlí 1944 að það væru kröfur fólksins um fleiri þvottavélar, ísskápa og hverskyns neysluvörur sem væri drifkrafturinn að baki framförunum. „Eitt það hörmulegasta, sem oss gæti hent, væri að þessi þörf minnkaði, að fólkið yrði svo dautt úr öllum æðum að það hætti að gera auknar kröfur til lífsþæginda."23 Af þessu sést að það var styttra á milli þess „verömætamats" sem sósíalist- ar og frjálshyggjumenn höfðu, en margur hyggur. SJÁVARÚTVEGUR Sósíalistaflokkurinn hvatti til stórfelldra atvinnuframkvæmda þegar árið 1941 á svipuðum grundvelli og raun varð á með nýsköpunarstjórninni. Lögðu þeir til að nýjar hafnir yrðu gerðar, sementsverksmiðja og áburðaverksmiðja risu og skipasmíöar stórefldar.24 En megináherslan var lögð á efl- ingu sjávarútvegs. Helstu rök- in fyrir því voru þau að sjávar- útvegurinn væri sérlega af- kastamikill og bent á að með- an 6000 bændur og búalið þeirra þræluðu við að fram- leiða 7000 tonn af kjöti, þá veiddu 5-6000 sjómenn 500.000 tonn af fiski. Deildi Þjóðviljinn á „Hriflungana“ í framsókn sem vildu hamla gegn vexti Reykjavíkur og sjávaútvegsins og gera verka- lýð bæjarins að hjúum í sveit á nýjan leik.25 En sósíalistar beindu sjónum sínum víðar en að höfuð- Boöberi nýja tímans og vaxandi velmegunar. Nýsköpunartogarinn Mars kemur til Reykjavíkur 26. apríl 1948. staðnum og sáu fyrir sér mikla uppbyggingu sjávarútvegs víða um landiö. Ólíkt stefn- unni í innflutningsmálum þá byggðist sjávarútvegsstefna þeirra á skipulagshyggju, þ.e. að þróunin ætti ekki að ráðast af tilviljunum, henni ætti að stýra með skipulögðum hætti. í því sambandi mætti nefna grein sem birtist í Þjóðviljan- um og bar heitið „Dreifloýlið við sjávarsíðuna" en í henni var varað við of mikilli dreif- ingu byggðarinnar við sjóinn. Var því haldið fram að sjávar- þorp yrðu oftsinnis til vegna geðþóttákvarðana einstakra athafnamanna sem ákvæðu að reisa fiskvinnslustöðvar á við- komandi stöðum. Síðan kæmu þingmenn viðkomandi kjör- dæma til skjalanna og færu að þrýsta á fjárveitingarvaldið um hafnarbætur og almenna þjón- ustu þannig að nokkur fjöldi fólks settist að í viðkomandi þorpum sem hefðu engin skil- Þannig sagöi Þjóövilj- inn /' júlí 1944 aö það væru kröfur fólksins um fleiri þvottavélar, ísskápa og hverskyns neysluvörur sem væri drifkrafturinn aö baki framförunum. 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.