Ný saga - 01.01.2001, Síða 28

Ný saga - 01.01.2001, Síða 28
Björgvin Sigurðsson Verkefnið var unnið á metnað- arfullan hátt og erþarmargt vel gert. Hægt er að skoða kortin í mismunandi upplausn og ítar- iegar upplýsingar um kortin er að finna á síðunum Mynd 1. Landsbókasafn Íslands-Háskóla- bókasafn hefur gert öll íslandskort í eigu safnsins aðgengileg á Netinu. Hér má sjá gamalt kort af Faxaflóa. net.is er merkilegt samvinnuverkefni vistað. Það eru Landsbókasafn íslands - Háskóla- bókasafn, Stofnun Arna Magnússonar og Cornellháskóli í Bandaríkjunum sem standa að verkefninu en markmið vefsins er að „varðveita og gera aðgengilegt á stafrænu formi um Netið um 350.000 blaðsíður hand- rita og um 150.000 blaðsíður prentaðra rita“.2 Efni vefsins er afar fjölbreytt safn úr íslensk- um fornbókmenntum, en þar má finna íslend- ingasögur og -þætti, goðafræði, biskupa- og riddarasögur, svo eitthvað sé nefnt. í upphafi árs 1997 sóttu aðildarstofnanir vefsins um styrk til Andrew W. Mellon sjóðs- ins í New York, en sjóðurinn hafði lýst yfir áhuga sínum á að koma að svo spennandi ný- sköpun. Áætlaður heildarkostnaður við verk- ið var 92 milljónir króna en Mellon sjóðurinn veitti 42 milljóna króna styrk gegn því að um- sækjendur öfluðu afgangsins. Það tókst og af- raksturinn er að finna á sagnanet.is. Vefurinn er þægilegur og auðveldur í notkun. Leitarmögu- leikar eru fjölbreyttir og góðir. Markmið verk- efnisins var að koma handritunum á stafrænt form og hefur það tekist ágætlega, myndirnar eru skýrar en óneitanlega væri þægilegra að hafa textann til hjálpar og til að leita í. Safnið er einungis safn Ijósmynda af handritum en notendur geta ekki leitað í textanum sjálfum. Fleiri Islendingar hafa spreytt sig á útgáfu fornbókmennta á Netinu. Netútgáfan hefur t.d. snarað ýmsum fornbókmenntum á tölvu- tækt form. þar á meðal eru nokkrar íslend- ingasögur, Landnámabók. Heimskringla og fornaldarsögur. Einnig má finna þar ýmis skáldverk s.s. Önnu frcí Stóruborg og Höliu eftir Jón Trausta. Netútgál’an gaf út geisladisk með þessu efni en textana er einnig að finna á heimasíðu fyrirtækisins. Aðferð útgáfunnar er gjörólík aðferð Sagnanetsins. Allar bækurnar eru setlar upp sem einfaldar vefsíður, ein bók á síðu. Form- ið er einfalt og gerir fræðimönnum ákaflega auðvelt um vik að leita að orðum eða orða- samböndum í heilum bókum. Framtakið er gott en gallinn er að notend- ur geta með engu móti áttað sig á hvaðan textarnir eru fengnir. Ómögulegt er að sjá hvaða gerðir eru notaðar, en stafsetning er færð til nútímahorfs. Það eru engar tilvísanir, merkingar eða annað til glöggvunar fyrir not- endur. Heimilda er ekki getið, og engar skýr- ingar eru á því við hvaða stafsetningarreglur er stuðst. Á vefnum koma reyndar fram nöfn þeirra sem standa að Netútgáfunni en heimil- isfang fyrirtækisins kemur ekki fram. Á vef Netútgáfunnar má því finna nokkur dæmi um óvandaða framsetningu sagnfræði- legs efnis. Hins ber þó að geta að allt efnið á vefnum hefur verið gefið út annars staðar og því er hægt að kanna hvort textarnir eru rétt- ir. Vefurinn nýtist þannig fyrst og fremst til leitar í texlunum; það getur sparað mikla vinnu að láta tölvuna leita að orðum eða orðasamböndum. Árið 1996 stóð Landsbókasafn íslands - Há- skólabókasafn fyrir því að öll íslandskort í eigu safnsins voru færð á rafrænt form og smíðað- ur var vefur þar sem hægt er að skoða kortin. Á vefnum má einnig finna ágrip af kortasögu íslands eftir Harald Sigurðsson.3 Verkefnið var unnið á metnaðarfullan hátt og er þar margt vel gert. Hægt er að skoða kortin í mismun- andi upplausn og ítarlegar upplýsingar um kort- in er að finna á síðunum. Vefurinn virðist hins vegar hafa verið lítið uppfærður síðan hann var settur á laggirnar árið 1996 og er það miður. Landsbókasafnið hefur um margt verið í forystu í útgáfu heimilda á vefnum. Safnið stóð að Sagnanetinu og Islandskortunum og hefur nú nýverið ráðist í enn eitt stórvirkið. 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.