Ný saga - 01.01.2001, Síða 30

Ný saga - 01.01.2001, Síða 30
Björgvin Sigurðsson Mynd 3. Vefur tímaritsins History Today er ætlaður sama mark- hópi og tímaritið, almennum áhuga- mönnum um sögu og sagnfræði. Helsti galli raf- bókanna er sá sami og ann- arra rafrænna miðla. Það eru ekki margir sem kjósa að lesa langa texta af tölvuskjá að. Rafbókum er úthlutað ISBN-númerum og höfundarréttur er tryggður, þ.e. ekki er hægt að afrita bækurnar með stafrænum hætti frekar en aðrar bækur. Að þessu leyti eru raf- bækur frábrugðnar öðru efni sem finnst á Netinu. Fjölmargir framleiðendur hafa hann- að hug- og vélbúnað fyrir rafbækur. Smíðaður hefur verið hugbúnaður fyrir lófatölvur eins og Palm4 og svo hafa verið gerðar sérstakar tölvur eða lesarar sem bækurnar eru lesnar í. Að sjálfsögðu hefur einnig verið búinn til hugbúnaður fyrir venjulegar einkatölvur. Eins og á flestum nýjum sviðum tölvugeirans stendur yfir hatrömm markaðsbarátta um staðla og búnað til að lesa bækurnar og nú virðist tvenns konar hugbúnaður vera í for- ystu á einkatölvumarkaðnum. Annars vegar er það Microsoft Reader frá Microsoft.5 Forritið er hannað og því dreift af tölvurisan- um frá Redmont, Microsoft. Aðalkeppinaut- urinn er Adobe fyrirtækið sem er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir útgáfustarfsemi. Fyrir- tækið framleiðir m.a. Photoshop og Illu- strator sem flestir áhugamenn um tölvugrafík þekkja. Forritið þeirra heitir Adobe Acrobat ebook Reader og er ókeypis eins og hjá keppinautunum. Búnaðurinn byggir á PDF sniðinu (Portable Document Format) sem Adobe hefur þróað og flestir þekkja af vefn- um. Rafbækurnar eru þó fullkomnari útgáfa þar sem þær hafa höfundarréttarvörn sem gerir notendum ókleift að afrita þær. Fjöl- mörg fyrirtæki önnur hafa spreytt sig á raf- bókum og svo virðist sem markaður fyrir þær fari sífellt stækkandi. í Bandaríkjunum er áætlað að um 100 þúsund tæki til lesturs raf- bóka séu í notkun, en spár gera ráð fyrir að þau verði um 1,9 milljónir.6 Fyrirtæki eins og Amazon.com og Barnes & Noble leggja urn þessar mundir mikla áherslu á rafbækur og hefur t.d. Barnes & Noble hækkað greiðslur til höfunda í þessu skyni. Útgefendur sjá fyrir sér að geta sjálfir dreift bókunum um inler- netið og útilokað þannig smásalana. Það þýð- ir að sjálfsögðu aukinn hagnað útgefenda en samdrátt hjá smásölum. Helsti galli rafbókanna er sá sami og ann- arra rafrænna miðla. Það eru ekki margir sem kjósa að Iesa langa texta af tölvuskjá. Raunar hafa skjáir batnað mikið undanfarin ár en flatir skjáir eru enn afar dýrir. Bækur og blöð eru enn handhægari en tölvurnar þótt það kunni að breytast. Á hinn bóginn er afar þægilegt að geta látið tölvuna leita í bókum. Bókamerki, glósur og hvers konar merkingar er nefnilega hægt að slá inn rafrænt sem er ákaflega þægilegt fyrir notandann. Af þessum sökum henta rafbækur best fyrir uppflettirit af ýmsu tagi. Leiðbeiningabækur fyrir tölvur og flókinn hugbúnað eru ákjósanlegar raf- bækur og ef hugsað er til sagnfræðinnar eru rit eins og íslanclssaga A-Ö eftir Einar Lax- ness og Stéttalal Sagnfræðingafélagsins til- valdar rafbækur. Heimildaútgáfur af ýmsu tagi geta einnig sómt sér vel í rafbókarformi. Nú þegar hafa nokkrir rithöfundar gerl til- raunir með rafbækur. Frægastur þeirra er lík- lega Stephen King sem gaf út eins konar framhaldssögu á netinu. Allir gátu sótt sér bókina en lesendur voru beðnir að greiða u.þ.b. 1 bandaríkjadal fyrir. Auður Haralds gaf út fyrstu íslensku netbókina á strik.is þann 27. október 2000.7 Þá hafa ýmsar stofnanir gefið út efni sitt á rafrænu formi samhliða bókaútgáfu. Sem dæmi gefur Hagstofa ís- lands út geisladisk með öllum sínum bókum. Á þessu ári hefur verið lífleg umræða með- al íslenskra sagnfræðinga urn framtíð tíma- ritaútgáfu unt íslenska sagnfræði. Fjölniörg er- lend tímarit eru komin á Netið og hægt að kaupa greinar sem þar hafa birst. Meðal tíma- 28
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.