Ný saga - 01.01.2001, Side 38
Átakaárið 1968
Birna Þórðardóttir
Þeir eru líka hrœddir
Sagnfræðin er sérkennileg, einkum fyrir þau
sem upplifa söguna. Sagnfræðin er það sem
skrifað er eftirá um atburði sem gerðust þeg-
ar þeir gerðust. Þannig er með Þorláks-
messuslaginn. I mínum huga var Þorláks-
messuslagurinn ekki á Þorláksmessu, heldur
tveimur dögum fyrr, samt var hann á Þorláks-
messu! En svona er sagan, segir sig eftirá af
þeim sem samþykkt er að segi hvað, hvenær,
hversvegna, hvernig. Hver samþykkir er mál-
ið, en aldrei opinberlega.
Þar með kemur hið yfirlýsta hlutleysi: sem
ekki er til. Ekkert hlutleysi er til. Allt er af-
staða. Afstöðuleysið er afstaða þeirra sem
standa með meirihlutanum; valdinu; ætíð.
Prologus
Hvenær markast braut einstaklingsins þannig
að ekki verði aftur snúið? Veldur hver á held-
ur. Sextíu og átta var árið sem markaði mína
braut; árið sem ég kynntist lífinu sem átti eft-
ir að verða lífið mitt - ævinlega - lífið. Ein-
kennilegt að sumu leyti en öðru ekki; að velja
meðbyr eða streitast í straumnum - þar liggur
valið.
Að ganga - út...
Ég gekk útúr Sigtúni með sjálfsöryggið í hálf-
gerðum tætlum þótt ég reyndi að bera mig
vel. Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur
sagði á fundinum að við hefðum allan rétt til
þess að ganga um götur Reykjavíkur og að
bera fram skoðanir okkar. Ganga, mótmæla,
meðmæla, vera með eða á móti. Nýta alþingi
götunnar! Alþingi götunnar, einmitt! Það var
svo sjálfsagt að það var næstum sætt að segja
það. Lögmaðurinn hlaut að vita það; Hvað
mátti, mátti ekki samkvæmt lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur. Ég vissi ekki núna, þá, að
seinna vissi ég hvað lögreglusamþykktin var
fyndin: „Gangir þú með naut um götur
Reykjavíkur skal gengið útá götu en ekki á
gangstétt.“ Það var líka sætt.
Fundurinn var fínn, fullt hús, mun fleiri en
í fyrradag. Enda snerist málið núna einnig um
réttinn til að koma skoðunum á framfæri.
Skoðunum okkar á Víetnamstríðinu, á hern-
um & Nató, á aftaníossahætti viðreisnar-
stjórnarinnar gagnvart Kananum, á stefnu
viðreisnar yfirleitl - á atvinnuleysinu & hús-
næðisleysinu & aflurhaldsmennskunni.
Undir niðri var ég óörugg. Skyldi löggan
vera fyrir utan? Yrði ég lamin aftur? Tveimur
kvöldum áður, 21. desember, var ég lamin af
löggunni á Austurvelli, síðan dregin áfram
framfyrir myndavélar; það var áður en gefin
var út fyrirskipun innan Nató að segja ekki
frá andófi: Það sem ekki er sagt frá hefur
aldrei gerst - einfalt - öruggt - áhrifamikið.
Ég sé fyrir mér andlitin; einhver bakvið
36