Ný saga - 01.01.2001, Síða 71
Tító virðist ekki hafa gert ráð fyrir að
neinn færi í fötin hans að honum gengnum.
Þvert á móti skildi hann eftir sig flókna
stjórnskipan sem fól í sér að forsæti í átta
manna forsætisnefndinni (einn fulltrúi frá
hverju lýðveldi og sjálfsstjórnarhéruðunum
Kosovo og Vojvodina) gengi regulega milli
manna. Leiðtogar lýðveldanna voru hins veg-
ar fljótlega komnir í hár saman og spenna í
samskiptum þjóðabrotanna í Júgóslavíu gaus
upp á yfirborðið - en henni hafði Tító haldið
niðri með ýmsum ráðum. Þjóðernissinnar
með stórum staf komust til valda; Slobodan
Milosevic í Serbíu og Franjo Tudjman í Króa-
tíu þeirra sýnu verstir.
Plaka, sem er á fimmtugsaldri, starfar fyrir
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)
í Kosovo og samtal okkar um örlög gömlu
Júgóslavíu fer frarn í bænum Brezovica,
fallegu fjallaafdrepi í suðurhluta héraðsins.
Einungis Serbar búa þar nú, verndaðir af
úkraínskum liðsmönnum KFOR-fjölþjóða-
hersins, sem lýtur yfirstjórn Atlantshafs-
bandalagsins, NATO. Kosovo og nú einnig
Makedónía eru vettvangur þessa nýjasta
kafla í harmsögu gömlu Júgóslavíu. Það er
albönsk þjóðernishyggja sem nú stýrir atburða-
rásinni.
Auk Serba og Albana - en þeir síðar-
nefndu telja unr 90% íbúanna - er einnig að
finna talsverðan fjölda sígauna í Kosovo.4
Mynd 3.
Josef Bros Titó (1892-1980) varð
þjóðhetja þegar hann leiddi andspyrnu-
hreyfingu Júgóslava gegn nasistum.
Að styrjöldinni lokinni stjórnaði hann
landinu með harðri hendi til dauðadags.
Sjálfur er Plaka það sem kallað er „bosníak",
sem merkir að hann er af slavnesku bergi
brotinn en islamstrúar. Hann kveðst hins veg-
ar alltaf hafa litið á sig sem Júgóslava. „Þeir
bjuggu til öll þessi nýju heiti yfir þjóðabrot-
in,“ segir hann, „en ég er og verð Júgóslavi.
Tilheyri Júgóslavíu eins og hún var og hét á
dögum Títós.“5
Plaka á sér ekki marga skoðanabræður í
Kosovo í dag, þó að hér hafi verið lagt út frá
eftirsjá hans eftir Títótímanum. Hashim
Thaci, sem gegndi forystuhlutverki í Frelsis-
her Kosovo (UCK) á meðan héraðið var
hvað mest í heimsfréttunum 1998-99, hefur
jafnvel ýjað að því að í raun hafi upplausn
Júgóslavíu hugnast Kosovo-Albönum býsna
vel; þeir hafi aldrei talið sig eiga heirna í því
húsi.6 Jafnframt telja margir að kenna verði
MONTENEGRO
Pristina,
Prisrén
Kumanovo
□OArakinovo
Skopjc
.Tirana
ALBANIA
Albanskir ibúar
í meirihluta
Mynd 4.
Kort sem
sýnir þau
svæði i
Serbíu,
Svartfjaita-
landi og
Makedóniu
auk Albaniu
sjálfrar þar
sem íbúarnir
eru að mest-
um hluta
albanskir.
69