Ný saga - 01.01.2001, Blaðsíða 84

Ný saga - 01.01.2001, Blaðsíða 84
Halldór Bjarnason Tafla 3. Flokkun heimildaíítgáfna 1995-99 eftir útgáfumáta Endurútgáfur Frumútgáfur Alls Fræðilegar útgáfur Ólíkar nútímamáli 4 3 7 Líkar nútímamáli 5 5 Blandaðar útgáfur 1 5 6 Lesútgáfur 4 2 6 Titlar alls 9 15 24 hæst upplýsingarstefnuna sem setti mikið mark á bókaútgáfu, komu út tíu titlar alls.8 Greinilegt er að mestur áhugi er á því skeiði Islandssögunnar þegar þjóðlífsbreytingarnar miklu byrjuðu og ísland fór inn á þær brautir sem samfélagið einkennist núna af. í því sam- bandi er athyglisvert að af ritunum sjö frá 1850-1914 voru fimm þeirra persónuheimild- ir að formi til. Það bendir til að menn vilji nota nýjar tegundir af heimildum til að skilja betur hin víðtæku áhrif þjóðfélagsumbylt- ingarinnar og þá um leið kanna ný svið sem hafi verið vanrækt í rannsóknum á þessu tímabili. Annað sem er athyglisvert í sambandi við tímabilaskiptinguna er hve miklu meiri áhugi virðist vera á upplýsingarskeiðinu í víðum skilningi (1700 til 1850) samanborið við næstu 150 ár þar á undan. Milli 1550 og 1700 urðu þó miklir atburðir og afdrifaríkar breytingar t.d. í menningarheimi Islendinga og jafnvel meiri en milli 1700 og 1850. Upphaf nýaldar virðist samt ekki jafn áhugavert í augum út- gefenda og skeiðið á eftir, því aðeins þrjár heimildaútgáfur tilheyra fyrra skeiðinu.9 Áhuginn á miðöldum virðist vera álíka lítill, því einungis þrjár aðrar bækur innihalda texta frá því fyrir 1550, en þetta eru Gyðinga saga, Biskupa sögur og Maríukver. Hins vegar má halda því fram að þessar þrjár bækur hafi einkum verið gefnar út af því að þær séu hluti af fornritaarfi okkar. Hvað sem því líður er vandséð hvernig stendur á þessu tómlæti um miðaldir, þegar fornbókmenntarfinum slepp- ir, og um upphaf nýaldar.10 Býsna fjölmennur hópur útgefenda stend- ur að heimildaútgáfum á Islandi eins og sést á því að sextán útgefendur og meðútgefendur stóðu að þessum 24 ritum frá 1995-99. Meiri- hluti útgefendanna gaf út aðeins einn titil hver en atkvæðamestir voru Háskólaútgáfan með sex titla, Stofnun Árna Magnússonar á Islandi með þrjá og Hið íslenzka bókmennta- félag með þrjá. Ekki er þetta að undra því stofnanir og útgáfur tengdar þeim hafa kannski helst áhuga á og jafnl'ramt bolmagn til að kosta siík rit, að minnsta kosti þau fræðilegri. Háskóli íslands gegnir hér mikil- vægu hlutverki því auk Háskólaútgáfunnar og Árnastofnunar stóð Orðabókin að einu riti og runnu því alls tíu af bókunum 24 að öllu eða nokkru leyti undan rifjum Háskólans. Sýnir þetta mikilvægi hans fyrir útgáfu heimildarita á Islandi. Þegar heimildaútgáfum er flett vaknar óhjákvæmilega sú spurning hverjum séu slík rit einkum ætluð. Til glöggvunar á þessu var ritunum 24 skipt í þrjá flokka. Til fræðilegra útgáfna töldust þeir textar sem voru gefnir út stafrétt og undantekningarlaust fylgdu þeim einhverjar skrár auk annars. Til lesútgáfna töldust þeir textar sem birtust með nútíma- stafsetningu og þar sem allar skrár skorti jafn- framt, t.d. um nöfn, staði og annað sem hefði getað fylgt með og komið lesendum að gagni. Til blandaðs flokks töldust þeir textar sem voru gefnir út með nútímastafsetningu en þar sem með fylgdu einhverjar eða allar þær skrár sem æskilegar mega teljast. Útkoman var sú að tólf titlanna töldust til fræðilega flokksins, og sex titlar alls til blandaða flokksins (tafla 3).11 Hreinar lesútgáfur voru því fremur fáar eða sex, enda er meiri akkur í blönduðu út- gáfunum, ef nútímastafsetning er á annað borð notuð, því þá koma þær að betri not- um.12 Þetta segir samt ekki alla söguna unr nota- gildi bókanna fyrir afþreyingarlestur því mörg 19. aldar rilanna, einkum þau frá seinni helmingi aldarinnar og eftir 1900, eru svo nauðalík nútímamáli að lítill vandi er að njóta þeirra og lesa greiðlega þótt þau séu gefin út stafrétt. Alhuga ber líka að þegar um latínu- texta var að ræða var gefin þýðing á nútíma- íslensku við hlið frumtextans. Því voru ein- 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.