Ný saga - 01.01.2001, Síða 86
Halldór Bjarnason
AF
BÓKUM
VIT.JÖN SÍNA
VAKTA BER
Safn greina ef(ir Jón Olafsson
úr Orunnavík
CMvUJr (irunmvtkur-IÓM
O* llí»kuJ*jl|tíf«n
andi verksins hefur búið honum í hendurnar
af skrám. Annar augljós kostur er sá að hægt
er að laga og endurbæta rafrænar útgáfur fyr-
irhafnarlítið og bæta smátt og smátt við þær,
ekki síst ef um netútgáfu er að ræða.
Rafræn útgáfa á gömlum textum á samt
miklu oftar rétt á sér en í þessum tilvikum og
virðist geisladiskaútgáfa vera kjörin fyrir út-
gáfur á stökum ritsmíðum eða efnislega
tengdum en þó afmörkuðum textum. Einkum
og sér í lagi eru geisladiskar kjörnir fyrir allar
stærri útgáfur og þær sem eiga fræðilegastar
að vera. í þessu samhengi má nefna geisladisk
þann er Mál og menning gaf út árið 1998, ís-
lendingasögur: Orðstöðulykill og texti. Hann
inniheldur allar íslendingasögurnar, eins og
nafnið gefur til kynna, og ótal skrár.
Dæmi um heimildaútgáfur, sem hér hafa
verið ræddar og hefðu sómt sér vel á geisla-
diski og gert kleift að nýta fjármagnið miklu
betur en ella, eru þrjú viðamikil og vönduð rit
frá hendi Stofnunar Arna Magnússonar á Is-
landi. Fyrsta dæmið er Gyðinga saga sem er
safn 13. aldar texta þar sem rakin er saga gyð-
inga á síðustu öldunum fyrir Kristburð, og jafn-
framt er birtur texti þeirra gömlu erlendu
sagna sem hafðar voru til hliðsjónar við sam-
ingu sögunnar á íslensku. Annað dæmið er
doktorsrit Einars G. Péturssonar en það er
um tvær ritsmíðar Jóns Guðmundssonar
lærða, sem uppi var á 17. öld. Ritsmíðar Jóns
fjalla um Snorra-Eddu og voru gefnar út með
riti Einars. Þriðja dæmið er útgáfa Árna-
stofnunar á bréfum Gunnars Pálssonar sem
uppi var á 18. öld.
Gyðinga saga er þykk bók, 399 bls., og
uppfyllir allar fræðilegar kröfur í hvívetna
eins og við er að búast af Árnastofnun. Sama
má segja um rit Einars seni er í tveimur bind-
um. Ritgerð Einars um Jón og textafræðileg
greinargerð er í fyrra bindinu, sem er 512 bls.,
en ritsmíðar Jóns í stafréttri útgáfu eru í því
seinna og er það 116 bls. Eins og vænta má af
doktorsriti er umfjöllun Einars háfræðileg,
textaútgáfan sömuleiðis, og ritið langt og ítar-
legt að sama skapi. Bindið, sem varðar bréf
Gunnars, inniheldur í raun aðeins fræðilegar
athugasemdir og skýringar við bréfin, sem birt-
ust í fyrra bindinu og var 512 bls., en seinna
bindið er 450 bls. að stærð.
Þegar um jafn fræðilegar heimildaútgáfur
er að ræða er ekki við því að búast að sala sé
mikil og hætt er við að seint eða ekki náist í
útgáfukostnað einan. Hér hefði ég talið áleit-
ið umhugsunarefni fyrir forráðamenn Árna-
stofnunar að sýna þá djörfung og framsýni að
gefa þessar bækur út á geisladiskum og geta
um leið eflt útgáfustarfið. Þetta á við um fleiri
bækur stofnunarinnar og reyndar sumar af
heimildaútgáfum annarra útgefenda. Ósk-
andi er að þeir sem standa að útgáfu gamalla
texta á næstu árum vakni til betri vitundar um
kosti rafrænnar útgáfu, því fátt mundi efla
hana meira og ávinningur fræðasamfélags
yrði ótvíræður, ekki síst ef vanræktum tíma-
skeiðum Islandssögunnar og afskiptum heim-
ildaflokkum væri meiri gaumur gefinn.
Eftirfarandi listi um heimildaútgáfur á íslandi
árin 1995-99 er byggður á íslenskri bókaskrá
Landsbókasafns Islands - Háskólabókasafns
en einnig var stuðst við Bókatíðindi Félags
íslenskra bókaútgefenda. Aftan við hverja
bók er getið hvenær 1. útgáfa kom út eða frá
hvaða ritunartíma textinn er, eftir því sem við
á. Hver titill er eitt bindi, nema annað sé tekið
fram.
Endurútgáfur
Biskupa sögur. 3. b. Árna saga biskups, Lár-
entíus saga biskups, Söguþáttur Jóns Hall-
dórssonar biskups, Biskupa œttir. Guðrún
Ása Grímsdóttir gaf út. Islenzk fornrit, 17.
Rv.: Hið íslenzka fornritafélag, 1998. (Frá
14. öld.)
Guðmundur Andrésson. Lexicon Islandicum:
Orðabók Guðmundar Andréssonar. [2.
útg.] Gunnlaugur Ingólfsson og Jakob
Benediktsson önnuðust útg. Orðfræðirit
fyrri alda, 4. Rv.: Orðabók Háskólans,
1999. (1. útg. 1683.)
Gyðinga saga. Ed. by Kirsten Wolf. Stofnun
Árna Magnússonar á Islandi. Rit, 42. Rv.:
Stofnun Árna Magnússonar á íslandi,
1995. (Frá 13. öld.)
[Helgi Grímsson, Björn Stefánsson.] Þóris-
dalur og ferð prestanna 1664. [Eysteinn
84