Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 12

Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 12
og um leið skáldsagan, líkan þessa heims. Descartes áleit að maðurinn yrði að glíma við heiminn einn síns liðs með fulltingi skynseminnar. Það var hetjulegt sjónarmið. Hitt var þó öllu hetjulegra að takast á við þversagnir tilverunnar með óvissuna eina að vopni. Slík var raunin um Donkíkóte að mati Kúndera. Það var þá sem þekkingarástríðan greip skáldsöguna heljartökum; hún tók að sér að verja mannlífið gegn „gleymsku verunnar" og túlka tilvist okkar og lífheim. Það er í þessu samhengi sem skilja ber kenningu Hermanns Broch er Kúnd- era gerir að sinni: Tilgangur skáld- sögunnar er að uppgötva það sem ein- ungis skáldsagan getur uppgötvað; skáldsaga sem ekki uppgötvar áður óþekktan tilvistargeira er ósiðleg. Þessi umfangsmikla krafa hefur látið undan síga á heildina litið: Menning- argagnrýnin hefur komið sér fyrir í fræðibókmenntum af ýmsu tagi sam- tímis því sem skáldsagan hefur í sífellt ríkara mæli runnið saman við „gleymskuna“; það gerist æ sjaldnar að menn tengi saman orðlist og þekk- ingarástríðu - því er líkast sem skáld- sagan hafi orðið lítilþægari með aldr- inum, og um leið léttvægari, eða með orðum Ólafs Hauks Símonarsonar: „Mér finnst eins og það vanti að fólk vilji segja samtímanum eitthvað með verkum sínum.“ Að sjálfsögðu eru margar undantekningar. Þannig er HVERSDAGSHÖLLIN, rannsókn á mikilvægum þætti mannlegrar tilveru, hversdagsleikanum; reynt er að lýsa reynslu sem hvorki festist á Ijósmynd né í fræðiritgerð, skynhrifum, orðum og myndum sem eru smávægileg og altæk í senn. Engu að síður er eins og saltið hafi dignað sé á heildina litið. Þannig hefur andi meðalhófsins sjaldan verið öflugri en nú á dögum í íslenskri skáldsagnagerð. Lítið er um vitræna nýsköpun og þekkingarleit; flestir halda sig langt fyrir innan mörk viðtekinna hugmynda og tilfinninga. Það ríkir undarlegt metnaðarleysi í efnisvali sé á heildina litið, a.m.k. hjá yngri höfundum. Það virðist skipta mestu máli að skrifa áreynslulausan texta og geta þess öðru hverju hversu erfitt sé að skrifa; slíkar neðanmáls- klausur koma í stað raunverulegs bar- daga við tungumálið. Skáldsaga Gyrðis Elíassonar, SVEFNHJÓLIÐ (1990), er til marks um þetta ástand. Hún ber með sér undarlega bælingu sem erfitt er að lýsa - þó að barátta sé til staðar fær hún ekki útrás í öflugri tjáningu; ein- hver hindrun er í vegi eða fyrirstaða, óhugnaður textans er eins og lokaður inni í skel - eða má taka líkingu af óútsprungnu blómi? Ég hélt það í fyrstu og beið átekta en er núna kom- inn á aðra skoðun. Eitthvað er það sem kcmur í veg fyrir að textinn springi út í stórfelldum skáldskap þó að hann sé óaðfinnanlega skrifaður; höfundurinn er ritfær með aflrrigðum. Skáldsögu Gyrðis hefur verið tekið með kostum og kynjum. Kannski fell- ur hún að þörf fólks fyrir innihalds- leysi; er ekki eins og slík þörf móti hugsunarhátt samtímans í æ ríkara mæli? Það þykir við hæfi að ritskoða eða jafna út miklar tilfinningar, ör- væntingu eða gleði - þær þykja hall- ærislegar; annað hvort eru menn hress- ir eða í fýlu - hvaðeina er fellt í viðjar hóflegs léttleika. Á yfirborðinu ríkja frelsi og fjölbreytni en sé dýpra skyggnst koma í ljós ströng forboð er takmarka það sem við hæfi er að segja og rita, einkum hvað varðar ofbeldi og kynlíf. Sú kynslóð sem nú er að komast til efna og áhrifa í samfélag- inu tjaldar ytri merkjum og trúðskap í hugsun og framkomu; prjálið og lífs- nautnin eru eitt og hið sama í vitund margra. Kannski þjóna skáldsögur eins og SVEFNHJÓLIÐ þörf þessarar kyn- slóðar fyrir obbolítinn smáborgara- legan hroll. Megi marka íslenskar skáldsögur seinni ára er lífið líkast draumkenndri flauelsvoð; hún er indæl og mjúklát viðkomu enda er þess gætt að rífa ekki hið viðkvæma efni sem ýmist er ofið úr œvintýri hversdags- leikans eða œvintýri ímyndunarafls- ins. Það heyrir til undantekninga að hreyft sé við sjálfsvitund okkar á rót- tækan hátt, að glímt sé við sögu og menningu af vitsmunalegri ástríðu. Að því leyti cru þessar bókmenntir gjörólíkar aldarlokaskáldskap sein- ustu aldar. Honum var bcint gegn stöðluðum hugsunarhætti, vísinda- legri skynsemi, hrokafullri guðstrú, vélvæðingu mannsins; fantasían átti sér rót í hamslausri glímu við drottn- andi gildi og hugsjónir. Mcnn voru meðvitaðir um anarkískt gildi skáld- skapar - að hann er þekking og leikur í senn, stjórnleysi, andóf gegn stífri hugsun og hugsunarleysi. Fantasían fellur inn í sjálfa sig eða leysist upp í meiningarlausan samsetning orða ef þessa meðvitund skortir. í slíkum til- vikum hefur hún litlu meira gildi en fótanuddtæki eða skafmiðahappdrætti sé til langs tíma litið. 3 Fyrra innskot um Mílan Kúndera Mílan Kúndera er þeirrar skoðunar að evrópsk hugsun sé í úlfakreppu um þessar mundir. Hann er ekki einn um það álit. Árið 1935, þremur árum fyrir dauða sinn, hélt heimspekingur- inn Edmund Husserl fyrirlestur um stöðu evrópskrar menningar sem að hans dómi varð til með heimspeki Forngrikkja. Taldi hann að þá hefði í fyrsta sinn verið litið á heiminn í heild sinni sem vandamál; þessi heimspeki kannaði ekki heiminn til að svala hagnýtri þörf heldur af því að „þekk- ingarástríðan hafði hertekið mann- kynið.“ Að mati Husserls má rekja kreppu okkar til upphafs Nútímans, til Galíleós og Dcscartes, til vísinda- hyggju sem gcrir heiminn að skot- spæni tæknilegra og stærðfræðilegra rannsókna; hún ýtti smám saman líf- inu sjálfu, lífheimi okkareða tilvist til 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.