Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 41

Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 41
KRISTINN G. HARÐARSON blöðum og oft eru myndirnar lengi að þvælast hjá mér áður en ég nota þær í verk. Þær síast inn í mig á löngum tíma og ég fer að þekkja þær ein- hvern veginn. Svo nota ég hluti, gamalt dót sem ég á, það tcngist mér, ég hef einhverja nálægð við það. Svo kemur líka fyrir að ég sting einhverj- uni hlutum af götunni í vasann. En það er þá eitthvað sem ég verð ást- fanginn af. Ég gcng ekki um bæinn og safna í poka, en því sem berst í hend- ur mínar hendi ég helst ekki. Ég þvæ alltaf upp mæjonesdollur, sultukrukk- ur og allt svoleiðis. HÞF: En er þessi umgengni við hluti ekki skyld frásögn? KGH: Jú, þetta er frásögn, kannski einhvers konar abstrakt frásögn. HUGARHEIMUR BERNSKUNNAR EP: En bernskan er hún mjög sterk í þér? I þinni listsköpun? KGH: Já. Ég hef fussað og sveiað yfir allri nostalgíu, en ég held að hún sé sterkari í mér en ég hef viljað viður- kenna. Það sem mér hefur fundist leiðinlegt við þessa fortíðarhyggju, sérstaklega hjá mörgum íslenskum rithöfundum, er áhuginn á tíðarand- anum, tískunni á þeim ákveðna tíma sem verið er að leita til, lýsingar á fata- tískunni og hljómsveitunum. Það er að vísu engin ástæða til að forðast þessa hluti en hallærislegt þegar farið er að gera út á þá. En ég man þegar ég var krakki og raðaði upp einhverju dóti, þá hætti maður gjörsamlega að sjá hlutina í sínu venjulega Ijósi hcldur fór inní einhvern annan heim. Maður var kannski að föndra við að leggja veg í moldarflagi. I huganum breyttist hann í alvöruveg, drullu- pollurinn í stórt vatn eða hafið, spýtan í bryggju, torfbleðill í fjall. EP: Þú hefur kannski aldrei hætt að leika þér? KGH: Nei, það er þessi hugarheimur sem ég vinn úr sem ég held að sé mjög svipaður hugarheimi bernsk- unnar. STA ÐA RÁ KVÖRÐ UN EP: Hvar seturðu sjálfan þig í því sem cr að gcrast í listinni í dag? KGH: Ég hugsa að ég hafi nú smakk- að á öllu þessu gumsi sem hefur flætt yfir. Það má nú greinilcga sjá áhrif frá mjög mörgu og ég er ckkcrt feiminn við það, ég tek allt sem ég hef áhuga á að taka, en ég vona að ég noti það persónulega. Nýja málverkið, það var mikil uppspretta fyrir mig, en ég held að ég hafi unnið málverkin og teikningarnar svolítið í bland við konscptual hugarfar. Það má segja að ég hafi lent á milli tveggja heima. EP: Finnst þér þú vera að fjarlægjast aðra listamenn? KGH: Hvort ég sé að verða einhver Sýning í Króknwn (FACO) 1988. Á vegg: viður, gler, kúlupennar, teygjur. A gólfi: gifs, viður og smárusl í glerkrukkum. 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.