Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 15

Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 15
BLEKKING O G ÞEKKING lcysis - samrunnin veikleika sein tjáir sig í hrollkenndum svita, líkamlegum daun, mélbrotnum spegli. Skáldsaga Rúnars Helga vísar á samtímann með ýmsum hætti. Ætli sjálfsmyndarkreppa söguhetjunnar lýsi ekki sjálfsniyndarkreppu okkar tíma einkar vel. Hún cr frumorsök þcss kaldsveitta veikleika sem lamað getur manneskjuna ef hún gleymir sér á varðbergi. Og þannig er það: Flestir hræðast eigið sjálf og reyna að sam- lagast yfirborði hlutanna - leitað er lífsfyllingar í félagsleguni gildum eða hlutverkum; afleiðingin er óhugnan- legur tómleiki sem einungis getur leitt til sjúkleika, máttleysis eða þá tauga- tryllings, þar sem fólk skemmtir sér til óbóta. Það er rétt sem sagt er: Samfélagið tekur okkur á taugum - innihaldsleys- ið flæðir yfir okkur eins og hland. Fólki er sagt hvernig það eigi að klæðast og elskast, hvað sé eftirsókn- arvert, hvernig það eigi að lifa lífinu. í samfélagi okkar er gínan í glugg- anum hin fullkomna fyrirmynd; hver og einn reynir að líkjast henni til hlítar - enda sækir oft að mér efi á göngu niður Laugaveginn: Er ég staddur í heimi gínunnar - eða hvar er ég? Hef ég kannski breyst sjálfur í gínu? Kemur ekki að því einn góðan veðurdag að gínan stígur niður úr sýningarglugganum og tekur völdin á strætinu - eða hefur það gerst nú þegar? Eitt er víst: Gínur hcrma ekki lengur eftir mönnum heldur menn eftir gínum. Ég sannfærðist um það eitt kvöldið er ungur maður birtist á sjónvarpsskjánum og talaði nákvæm- i, lega eins og Arthúr Björgvin. Það er ósköp skiljanlegt að menn scu yfir- borðskenndir í framkomu; liitt er verra þegar þeir sækja yfirborð sitt til annarra - þá flækjast málin svo um munar. Og við upplifum eitthvað scm er yfirborðskennt yfirborð annars yfirborðs. Söguhctja NAUTNASTULDAR er bókmcnntalegt skyldmenni Ólafs Þór- hallasonar og Stcins Elliða - samt er eins og hún geti varla fjarskyldari verið. Einhvern veginn er hún þó tímans merki; svona náungar kúldr- ast víða í kjöllurum bæjarins. Og maður spyr sjálfan sig: Hvenær og hvers vegna gerðist það? Hvenær hættum við að geta valið og hafnað? Hvenær urðum við of máttlaus til að geta skitið af nautn? Var það á tímum Þórbergs? 5 Seinna innskot um Mílan Kúndera Mílan Kúndera er þeirrar skoðunar að skáldsagan hafi fjallað um ráðgátu sjálfsins frá upphafi vega. Um leið og höfundur skapar ímyndaða veru ritar Kúndera, vaknar áleitin spurning: Hvað er sjálf? Hvernig er hægt að ná taki á því og skilja það? Margskonar svörum hefur verið slegið fram í gegn- um tíðina; segja má að þau skilji á milli ólíkra strauma og jafnvel tíma- skeiða í sögu skáldsögunnar. Allt fram á 18. öld var sálfræðileg krufning óþekkt, að mati Kúndera. Þannig greinir Boccaccio aðeins frá viðburðum, athöfnum og ævintýrum. Sögur hans bera með sér sannfæringu scm lýsa má á svofelldan hátt: Mað- urinn er það sem hann gerir; með at- höfn sinni stígur hann út fyrir endur- tekningu hversdagsins og verður að einstaklingi. Diderot var mun efa- gjarnari fjórum öldum síðar. Sögu- hetja hans, Jacques, tlekar unga stúlku og gjörist drukkin af víni; hún er lúbarin af föður sínum og skráir sig í hersveit af einskærri þrjósku - í fyrstu orrustunni er hún skotin í hnéð. Þessi söguhetja heldur í upp- hafi að ástarævintýri sé í uppsiglingu en uppsker líkamleg örkuml; hún stað- festir ekki sjálfa sig með eigin athöfnum - eða mcð orðum Kúndcra: Maðurinn vonast til að finna mynd sína í tiltekinni athöfn en kemst að raun um að myndin er af öðrum manni. Skáldsagan hlaut að leita sjálfsins annars staðar. Henni var nauðugur einn kostur að snúa augliti sínu frá sýnilegum heimi atburða og athafna að ósýnilegum hugarheimi mannsins. Það gerðist um miðja 18. öld að mati Kúndera. Um það leyti uppgötvaði Richardson bréfsöguformið þar sem persónur játa hugsanir sínar og kcnndir. Skáldsagan lagði af stað í mikið ferðalag sem enn stendur yfir, ferðalag um hugarheima mannsins. Kúndera er þeirrar skoðunar að þessi leiðangur hafi náð hástigi sínu með Proust og Joyce. Þannig skilgreinir Joyce eitthvað sem er enn óáþreifan- legra en hinn glataði tími Prousts: augnablikið, andrána sem líður. Við fyrstu sýn virðist ekkert vera augljós- ara og áþreifanlegra en andartakið. Engu að síður rennur það sífellt milli fingra okkar eins og smákornaður sandur. Kannski harmleikur eða dep- urð lífsins sé í því fólgin. Á einu sek- úndubroti taka skilningarvit okkar við margbreytilegum áreitum sem okkur eru ýmist meðvituð eða ómeð- vituð, og skrúðfylking skynhrifa og hugsunarbrota glundroðast í gegnum höfuð okkar. Sérhvert augnablik er dálítill alheimur sem glatast á svip- stundu. Frásagnartækni Joyce má líkja við ötluga smásjá, ritar Kúnd- era, af því að hún stöðvar þetta kvik og leiðir augnablikið í ljós. Engu að síður lýkur leitinni að sjálfinu í þver- stæðu líkt og áður: Því öflugri sem að- dráttarlinsa smásjárinnar varð, þeim mun ógreinilegra varð einstæði sjálfs- ins - linsan braut sálina í einfalda frumþætti sem sameiginlegir eru öllum mönnum. En sé einstæði sjálfsins ekki að finna í innra lífi manneskjunnar, hvar er þess þá að leita? Er yfirleitt hægt að ná tökum á sjálfinu? Svar Kúndera er neikvætt. Að hans dómi lýkur leit- inni ávallt í tvístringi eða þversögn. Kafka var meðvitaður um þetta, ritar Kúndera, hann valdi sér því leið að sjálfinu sem var fullkomlega óvænt og 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Teningur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.