Teningur - 01.10.1991, Blaðsíða 21
PYNTINGAMEISTARINN
arastofuna og mig dauðlangaði í sígar-
ettu.
Loks kom Baldur. „Komdu,“ sagði
hann. Ég elti hann inní lítið herbergi
innaf kennarastofunni. Við settumst
gcgnt hvor öðrum við lítið hringlaga
borð og hann lagði einhver blöð á
borðið.
„Jæja Grétar,“ sagði hann loks.
“Hvað gengur að þcr?“
„Að mér? Ekki neitt,“ sagði ég eins-
og auli.
Hann horfði á mig stundarkorn og
ég skildi ekki afhverju maðurinn gat
ekki komið sér beint að efninu.
Loks kom það og þessu var ég
algerlega óviðbúinn.
„Það komu hér foreldrar í gær og
það var ófögur saga sem þau höfðu að
scgja. Sonur þeirra líður vítiskvalir
og þorir varla í skólann vegna þess að
einhver aumingi leggur hann í einelti
með svívirðilegum háðglósum og legg-
ur á hann hendur í þokkabót svo stór-
sér á drengnum."
Ég fór alveg úr jafnvægi og ég
skildi ekkcrt í sjálfum mér. Ég var
ekki vanur að fara svona úr jafnvægi
þegar ég var kallaður fyrir.
„Hvað gengur þér eiginlega til, ha?
Hvernig dettur þér þessi vitleysa í
hug? Ég ætla að láta þig vita að Páll
er fullkomlega eðlilegur drengur og
að svona kemur maður ekki fram við
skólasystkini sín, minnstakosti ekki
hér í þessum skóla.“
Baldur horfði stíft á mig og ég
starði á öskubakkann á miðju borð-
inu cinsog hann hefði eitthvað að
geyma mér til hjálpar.
„Hvað, hefurðu ekkert að segja?
Geturðu í það minnsta ekki greint
mér frá því hvað þér gengur til?“
„Ekkert,“ sagði ég óstyrkur. „Ég
meinti ekkert með þessu. Eiginlega
kann ég mjög vel við hann.“
Ég botnaði ekkert í því sem ég var
að segja og síðasta setningin sló mig
alveg útaf laginu.
Ég sá ekki betur en að Baldur
kímdi. „Heyrðu Grétar minn, við
skulum ckki ræða þctta frekar núna,
við förum á eftir og náum í Pál og þú
biður hann afsökunar og réttir fram
sáttarhönd. Svo vil ég ekki þurfa að
heyra á þctta minnst framar. Er það
skilið?“
Ég kinkaði kolli. „Já.“
Ég hélt að þessu væri lokið, en þá
rétti Baldur úr sér í stólnum og tók
einhver blöð af borðinu og sagði: „Þú
gerir það ekki endasleppt, Grétar
minn. Hér er ég með próf sem þú
tókst í sögu og verkefni úr dönsku og
ég verð að játa að ég fæ botn í
hvorugt. Kannski þú getir útskýrt
þetta fyrir mér?“
Hann las svar við einni spurningu
úr söguprófinu: „Ágústus lét sér bara
nægja að vera opinber starfsmaður að
nafninu til. Hinir á eftir voru lærðir.
Einnig lét hann sér nægja óstjórn og
linnulausa borgarastyrjöld.“
Hann gaut augunum til mín. „Viltu
að ég lesi meira?“
Ég hristi hausinn.
„Og geturðu sagt mér hvað þetta
er?“ Hann dró upp blað og hélt því
fyrir augunum á mér. Ég sá strax að
þctta var tillögublaðið mitt um dönsku-
kennslu sem ég hafði skilað inn
nokkrum dögum áður. *
Ég horfði á blaðið og mér fannst
einsog einhver annar hefði skrifað
þetta þó að það væru bara nokkrir
dagar frá því að ég skilaði þessu inn.
„Grétar minn, þú hlýtur að skilja
að við erum alveg að gefast upp á þér.
Ég ætla að tala við foreldra þína í dag
og boða þau á fund hér í næstu viku.“
Hann hallaði sér í áttina til mín.
„Hvernig líst þér á að mæta hér í
næstu viku með mér og sálfræðing og
foreldrum þínum auðvitað."
„Ágætlega,“ sagði ég, og var hætt-
ur að taka eftir.
„Fínt!“ sagði hann rösklega. „Og
nú komum við og tölum við Pál.“
Ég fylgdi honum viðutan um ganga
skólans uns við komum að einni
* Grétar Sigurðsson 9. c.
HVERNIG NÁUM VIÐ ÁRANGRI í DÖNSKU
Hvað? Hvernig? Hversvegna?
Klámmyndir. Glósa verkefni verklegt Áhugavekjandi, skemmti-
og fá danska fullnægingu legt og samþætt við fleiri
námsgreinar, td líffræði og
dýrafræði
Lokaverkefni: Ferðast til landsins og sjá hóruhúsin og reykja danskt stuð.
19