Teningur - 01.10.1991, Page 17

Teningur - 01.10.1991, Page 17
BLEKKING OG ÞEKKING varpsins útrýmdu þögnunum tveimur klukkustundum síðar. Engu að síður hafði það stórfellda þýðingu fyrir Kúndera - það afhjúpaði tilvistar- legan möguleika, að veikleikinn getur hellst yfir hvern sent er; hver er sá sem ekki getur hafnað í sporum Dúbceks. Terezu býður við veiklyndi hans og kýs að flytjast úr landi, en líður innan skamms á sama hátt í sambandi þeirra Tómasar eins og Dúbcek frammi fyrir Brezhnev; hún fyllist af svima, ölvast af eigin veik- leika og þráir að sameinast duftinu. Af þeim sökum snýr hún aftur til Prag. I 6 Það er eins og upplyfting hugarflugs, ævintýris og skáldlegs leiks hafi leitt af sér gjallandi innihaldsleysi - að gagnrýninn þáttur bókmenntanna hafi gleymst í flaumi snjallra orða, flugmikilli mælsku sem dag einn hafði breyst í innantóma mælgi er engurn kom við. Raunverulegur listamaður er frjósamur gagnrýnandi, sagði Guð- bergur Bergsson eitt sinn. Gagnrýni þarf ekki að byggjast á því að til sé eilífur kjarni, ótvíræð merking eða algilt siðakerfi, né heldur sannleikur - því eins og sagt hefur verið: Sann- leikur er ckki til nema sem endastöð allra spurninga; sannleikur er dauði, afnám ljóðs og leitar. Spyrjum ekki: Hvað merkir lífið, hvaða tilgang hefur það? - heldur: Hvernig merkjum við lífið, hvernig gæðum við það tilgangi? Skáldsögur seinasta áratugar voru vettvangur endurmats og sjálfsíhug- unar í norrænum bókmenntum; marg- ar þeirra trúðu hvorki á sjálfar sig né samfélagið ef svo má að orði komast - þær fjölluðu allt eins um skáldskap sent lífið fyrir utan; fantasían var markmið þcirra. Þessi áratugur ein- kenndist af frjóum leik og fjölbreytni sé á heildina litið. Samt er eins og sóknarhuginn hafi vantað sé horft til verka yngri höfunda - það gætti ákveð- ins máttleysis eða tómlcika. Skáld- söguhöfundurinn minnti á sívaxandi mæli á leikara; við horfum á hann leika sér um stund og segjum sko, förum síðan heim til að lifa. Á þessu tímabili var gert upp við raunsæis- hncigð er einkenndist af stífri lmgsun og klénu tungumáli; ólistrænum boð- skap var hafnað og hugarflugið hafið til vegs. Þetta var tímabært uppgjör. Hitt var verra að menn blönduðu saman rannsókn og boðskap; það tók að gæta undarlcgrar hugmyndafælni. Raunsæishöfundarnir vildu segja sannleikann um samfélagið; verk þeirra voru bundin við félagslega nútíð, raunverulegar aðstæður, dægur- vandamál. Núna var lcitað á önnur mið, út fyrir nútíðina og samfélagið, á vit ímyndunaraflsins; hið persónu- lega sjónarmið var sett á oddinn. Dagný Kristjánsdóttir fellir harðan dóm yfir þessu umróti í nýlegri ritgerð. Það átti sér stað „af-pólitíser- ing“, ritar hún, sem jaðraði viö íhalds- stefnu og daður við fasisma. Fantasíu- krafan kallaði yfir okkur skáldsögur er líkjast einna helst ævintýrum úr Disneylandi að mati Dagnýjar; þær eru stútfullar af dvergum, draugum og galdrakerlingum en eiga lítið skylt við töfraraunsæi - kannski má tala um draugaraunsæi. Skoðun Dagnýjar er athyglisverð hvað sem líður hugmynd hennar um daður við fasisma. Andúð- in á félagslegum boðskap náði alltof langt sé á heildina litið; menningar- legri gagnrýni var í raun afneitað, andófshlutverki bókmennta, og mis- góð töfrarómantík var hafin til skýj- anna, jafnfrantt því sem frásagan varð að verðmæti í sjálfri sér. Það gleymd- ist oft að sagnalistin er leikur og könn- un í senn, að hún er þekkingarnám, glíma við tilveru og menningu. Skáldsaga Einars Más Guðmunds- sonar, RAUÐIR DAGAR (1990), er leikur en ekki rannsókn, leikur að frásögn, sagnaritun í búningi skáld- sögu. Lýst er uppákomum er minna á kjötkveðjuhátíð, sprúðlandi lífskrafti og ærslum, ævintýri í mannaminnum, svo og döprum og harkalegum atburð- um, ofbeldi og sársauka. Engu að síður er skáldsagan undarlega áhrifa- lítil; stíll hennar ber vott um hik eða öryggisleysi - því er líkast sem höf- undur sé á báðum áttum, að lcita fyrir sér. Kröftugur og auðugur myndstíll liefur vikið fyrir raunsæislegri rithætti sem fellur stundum niður í flatneskju, einkum frantan af. Reynt er að búa til sjálfstæðan málheim með rót í hinu sögulega - því sem gerðist árið 1968. Það tekst ekki til fullnustu að mínum dómi; reynsla sögunnar er undarlega fjarlæg þótt sagt sé frá sögulegum við- burðum. Þannig öðlast lesandinn litla innsýn í það sem rekur persónur 15

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.