Teningur - 01.10.1991, Side 25

Teningur - 01.10.1991, Side 25
T V O L J Ó Ð 1 Blæs köldu frá jöklinum, sýp á söltu og þcssi djöfulsins fiskur flæktur í net snúið og kalinn kræktur fastur í hafið. Ætli ’ún bíði, hvar skyldi hún vera. Rífð úr ’enni kinn, helvítis bikkjan. Skakar á öðrum, ekki heima stendur ekki heima. Myrkur klofið í hcrðar niður skæru ljósi, kolgrænir dalir lifandi og jökulröndin ofantil. Fjandi blæs hann, réttu mér hnífinn. Stálað upp í kjaftinn stálað upp í kjaftinn. Kalt blóðið og augun frosin, frosin augu. Slcngdu helvítinu til mín djöfulsins gapuxinn þarna uppi veit ekki neitt, algjör skítur og úrþvætti... froðufellandi bryðjandi hvítt hvítan lieim sótthreinsaðan og lausan við böl, eintómt böl. 2 Nær nær nær inn úr skinni nær holdi heitu holdi og köldu. Sterkur sem gler grætur ekki og lofar erminni allri. Leit á mánann; í fiskum hugsaði hann fór undir yfirborðið sleikti upp leifarnar og lá í tröppunum steinrunninn. Taxi taxi og regnið, steypist niður niður og ískrar í hugsuninni sakkarínsætri, og hundar með gömlum konum gömlum konum risastórum á skítugri dýnu risastórri, með gamalli konu og hundi stórum stórum hundi. BÁRÐUR R, JÓNSSON 23

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.