Teningur - 01.10.1991, Qupperneq 43

Teningur - 01.10.1991, Qupperneq 43
/ KVÖLDSKÓLA EP: Flestir eða alla vega helmingur þeirra sem voru í þessu nýja málverki höfðu þennan flúxus eða hugmynda- lega grunn en svo voru aðrir sem voru hreinræktaðri málarar, expressíonist- ar. KGH: Þetta var aldrei hreint málverk hjá mér þó Valtýr Pétursson hefði sagt að ég væri málari. EP: En þú ert ekki málari? KGH: Nei ég er ekki málari, ekki beint, ekki eftir hinum hefðbundna skilningi. HÞF: En hvað ertu? KGH: Ég er iuskari! Það er mikill fúskari eða föndrari í mér. Mér hryllir við of mikilli fagmennsku þegar mín verk eru annars vegar. Ég held einhvern veginn að ég vilji svo- lítið óöryggi, einhvers konar listrænt óöryggi, vera með annan fótinni í lausu lofti. HÞF: En er öryggi ekki háð tíma? Fyrr en varir er ögrandi verk orðið hið hefðbundna? KGH: Ég er kannski ekki að tala um þetta. EP: Þú setur þig frekar á bekk með þessum íslensku fúskurum sem var ýtt til hliðar af FÍMurum og Súmmurum hér áður? KGH: Ég veit það nú ekki alveg. EP: Þú nærist kannski frekar á þeirra viðhorfi, þér finnst einhvers konar kvöldskólalist vera alveg jafn spenn- andi list og hvað annað? KGH: Mér finnst hún spennandi sem efniviður, sem hugmynd. Það er oft mjög skemmtilegt hvernig áhugafólk málar. oft alveg laust við reglurnar um myndbyggingu, jafnvægi í lit og „rétta“ teikningu. Það hefur oft örvað mig að sjá verk áhugamálara, en ég er menntaður og meðvitaður listamaður og losna aldrei undan því þó ég vildi. Mars 1991 KRISTINN G. HARÐARSON í HÁTTINN SAGA Útvarpið: Rafmagnslínur slitna vegna ísing- ar... staurar brotna af þunga íssins og veðurofsans... dimmt og kalt í húsum... bifreið fýkur út af vegi... farþegarnir skríða út... inn aftur vegna hamsins... út aftur er rúður taka að brotna... skríða eftir veg- inum að yfirgefinni bifreið skammt frá... á hálendinu er fólk fast í bílum... bárujárn fýkur víða af þökum... í einu fjárhúsi standa sperr- urnar strípaðar eftir... féð óttaslegið, í einum hnapp... (Slekkur á tækinu.) Hann teygir sig í lampann við rúm- ið og slekkur á honum. Það er dimmt í herberginu nema hvað örlitla birtu leggur inn um gluggann frá tungli og götuljósum. Nú dregur hann sængina upp fyrir höfuð þeirra beggja (húð þess minna er alþakin rauðum bólum) og rennir leikfanga-slökkviliðsbíl eftir lærinu. Sýrenurnar rjúfa kyrrð hjúpsins, hljóðið hækkar og lækkar í sífellu og rauðu ljósin tvö ofan á þak- inu byrja að blikka - það kviknar og slokknar á þcim sitt á hvað. Ljósið lýsir upp litlu, hlýju veröldina undir sænginni og bregður rauðri birtu á mynstur sængurinnar: litlar greinar, grasstrá og blómskúfa á stönglum. Ofan á næstu sæng, fastur í gili milli tveggja hvítra og brattra sængur- vershlíða, er lítill sjúkrabíll. Á toppi hans er hvítt skilti með gulum stöfum: EMERGENCY. Frá sýningu í Nýlistasafninu 1991. 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.