Teningur - 01.10.1991, Side 52

Teningur - 01.10.1991, Side 52
H A M R I N U M einu rennur upp fyrir honum að hann er bæði gerandi og þolandi í framrás atburðanna. Á því andartaki er stutt í hugrenningar um að vera sjálfur runninn úr penna skálds, mikils höfundar, Höfuðskáldsins. Þaðan er skammt í hugmyndir um að lesandinn sé persóna í mun meiri sögu sem í senn sé sköpunar-, þroska- og örlaga- saga hans sjálfs og allra lesenda, allra bræðra í Bókinni, allra bræðra í Fiski, bræðra í Hamri, í Banka, Búð. En fyrst og fremst Bræðra. Ég gæti best trúað að það sé hinn upprunalegi tónn í texta Þorvarðar sem vekur slíka kennd, frumtónn sem sóttur er langt afturí söguna cinsog einkunnarorð hvers prósakafla í Háska og skuld bera með sér - sótt í Snorra-Eddu, Kóraninn, Veda- kvæðin og Biblíuna. Allt eru þetta rit sem geyma eldfornan arf ólíkra menn- ingarsvæða. Svæða sem nútímamað- urinn hefur með brambolti og yfir- gangi á þessari öld og síðustu lagt sig í líma við að sundra og egna til ófriðar hvert gegn öðru (og sóst það vel). En samhengi bókmenntanna, samofin örlög mannanna verða ekki höggvin sundur með sverði né sprengd með fallstykkjum eða flug- skeytum; F-15 og B-52 eru grátleg skrapatól hjá þeim stórvirkjum and- ans sem þessar bækur geyma. Þær eru frumrit sem allar góðar bækur endur- óma hver í sinni tóntegund. Endalok mannanna í spásögn Þor- varðar eru því ekki tilefnislaus: „Hinn rótslitni sjálfskipaði skapari reisti handverk sín á þeim mótum er gnógt var náttúrulegra auðlinda, en upp af þeim stigu dimm ógnarský og eimyrja er huldi himininn, eitraði vötnin og úthöfin, tætti í sundur landið, engin og skógana, eftir stóðu hinar víðlendu eyðimerkur sanda og hjarns /.../ Orðin fornu um fyrirgefn- inguna, sáttina, arfhelgina, hin gömlu sannindi um mynd mannsins, unaðs- semdina og fegurðina glötuðu inntaki sínu, viku fyrir græðginni, girndinni, þrúgandi ótta þess er hatar allt sem cr frábrugðið og hann skilur ekki, myrkr- ið hrósaði sigri. Maðurinn dáði hina fögru spegilmynd sína, ræktaði hana nostursamlega, fagnaði henni hvar sem hún birtist, ekkert var honum ofar, skuld hans engin /.../“ Hér er „góðkunningi“ á ferð þótt umgjörðin sé fornleg, hljómurinn líkt- og útúr gömlu helgiriti; það er þessi skarpa andstæða sem magnar ógn textans og gefur honum beiskan spá- sagnarkeim. Sögur sem ganga í berhögg við skipun dagsins gleðja mig. Skáld- skapur sem aðeins lýtur lögmálum eilífðarinnar og hiröir ekki um tísku, gerir það líka. Fari þetta tvennt saman gleðst ég vel og lengi. Mér er etv. ekki skemmt en ég er sannarlega glaður: alltaf verður einhver til að rækja þjónustu sína við skáldskapinn með sóma. Þorvarður Hjálmarsson er ekki einn íslenskra höfunda um það, því fer fjarri, enda er þetta ekki skrifað til að hefja hann á stall - hann er hér fulltrúi þeirra þjóna sem ásamt húsbónda sínum beygja sig í lotningu frammifyrir mikilfengleika hins óum- flýanlega austanvinds.1' 11 Ljóð frú SúmíTaígí þýddi Helgi Hálfdanarson. Bók l>orvarðar. Háski og skuld, hcfur að geyma bæði ljóð og prósa. Hér hefur aöeins veriö minnst á prósakafla hennar. Kjartan Arnason U N D I R J 50

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.