Teningur - 01.10.1991, Page 56

Teningur - 01.10.1991, Page 56
LAUFEY HELGADOTTIR VIÐTAL VIÐ BERNARD MARCADÉ BERNARDMARCADE Bcrnard Marcadé (fæddur 27. júní 1948) er franskur listfræðingur og gagnrýnandi sem býr og starfar í París. Eftir að hann lauk doktorsprófi í heimspeki frá Sorbonne-háskóla hefur hann kennt við listaskólann í Cergy Pontoise (Ecole Nationale d’Art de Cergy Pontoise) sem er ein af nýju borgunum fyrir utan París. Hann skrifar fyrir listtímarit eins og Art Press, Flash-Art, Parkett og Art- Studio og hefur skipulagt sýningar t.d. Hommage a Pierre Loti, Hist- oires de Sculptures, Luxe, calme et volupté, Affinités électives og fleiri. Þegar hafa komið 3 bækur út eftir hann hjá útgáfufyrirtækinu Éditions de la Différence, les Années 50, Arn- ulf Penck og L’Éloge du Mauvais Esprit sem kom út 1986. Pað var svo sólríkan dag seint í maí síðastliðnum sem við hittum hann að máli á heimili hans í París. Listsagnfræðingur, listgagnrýnandi eða heimspekingur? Sp. Hvar eigum við að staðsetja þig? Lítur þú á sjálfan þig sem list- sagnfræðing, listgagnrýnanda eða heimspeking? B.M. Ég held ég hafi mestan áhuga á listgagnrýninni sem nærist reyndar á listasögunni og listfræðinni og þar af leiðandi á heimspekinni. En ég reyni að nálgast listina á alveg sérstakan hátt sem ég einskorða samt ekki við listfræði eða listasögu. Orðið list- gagnrýnandi er ágætt, en það nægir mér ekki, ég vil heldur tala um list- rænan gagnrýnanda sem væri þá eitt- hvað svipað og það sem Nietzsche átti við þegar hann talaði um listræna heimspeki. Það er hvorki heimspeki listarinnar né heimspekileg list hcldur listræn heimspeki, þ.e.a.s. heimspeki sem tekur mið af listinni sjálfri. Hún rannsakar ekki listina utan frá heldur þróast út frá listhugsuninni sjálfri, út frá kjarna listarinnar sjálfrar. Þar með er ég ekki að segja að listrænn gagnrýnandi þýði að ég sé listamaður sem skrifi gagnrýni. Sp. En kemst mjög nálægt því? B.M. Samt ekki alveg. Ég nota tungumálið scm listgagnrýnandi svo ég er ekki myndlistarmaður og ég er ekki heldur rithöfundur, jafnvel þó það sé mjög skylt. Það gætir skyld- leika við vissar bókmenntagreinar. Listgagnrýnin varð jú ákveðin bók- menntagrein í Frakklandi með Baude- laire og Diderot eins og leiklistin, ljóðlistin og skáldsagan eru bók- menntagreinar út af fyrir sig. Margir rithöfundar lögðu það fyrir sig að skrifa einnig bókmenntagagnrýni eins og t.d. Baudelaire, Stendhal, Diderot og Zola. Þar sem ég á ekki að baki skáldsagna- né leikritagerð og er þar af leiðandi ekki rithöfundur þá stað- 54

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.