Birtingur - 01.01.1957, Page 47

Birtingur - 01.01.1957, Page 47
mjög svipað umhorfs í leikhúsum annarra menningarlanda. Maður sagði við mig um daginn, að það væri skaði, að ekki hefðu orðið neinar byltingar í leiklist á borð við expressjónismann í málaralistinni, og þetta er vissulega orðið geigvænlegt vandamál. Það er ekki aðeins, að leikskáldin séu stöðnuð, heldur draga þau alla aðra, sem að leiksýningum starfa, niður í svaðið með sér. Leikarar fá ekki tækifæri til að þróast í list sinni, því þeir eru sífellt að þylja sömu þuluna. Leikstjórarnir eru bundnir á básinn og finna nú helzt þau úrræði til fjölbreytni að íklæða hina klassísku karaktera nútímabúningum eða t. d. að gera Lear konung að veikgeðja gamalmenni í stað harðstjórans, sem áður þekktist. 90% þeirra verkefna, sem leiksviðsteiknarar fá í hendur, eru natúraliskar stofur. Og umfram allt staðna leikhúsgestir og vilja nú fátt annað sjá en innihaldslitla hlátursleiki. Á tímabilinu frá því fyrir aldamót hafa ótrúlegustu byltingar átt sér stað í heimi listarinnar. Myndlist, tónlist og Ijóðlist hafa gjörbreytt um túlkunarmáta, vegna þess að hugsunarháttur manna og lífsviðhorf taka sífelldum breytingum. Tízkan fylgir fast á eftir listinni. Klæðnaður manna, húsbúnaður, bílar, allt umhverfi mannsins fylgir samvizkusamlega sveiflum listarinnar og hefur alltaf gert. Aðeins leiklistin virðist drattast á eftir, langt á eftir, og er nú svo stöðnuð að fólki er varla láandi, þótt það heykist á að kaupa sig dýru verði inn á þessar óinnblásnu og hugmyndasnauðu samkomur. Þótt almenningur snúist ávallt í fyrstu öndverður gegn breytingum á listformi, vinna þær fljótlega hylli, ef þær eru á annað borð einhvers nýtar. Satt er það, að formbreyting ein saman getur ekki bjargað leiklistinni frá hnignun. Það er lítið gagn í því að vera frumlegur, ef frumleikinn hefur ekkert listrænt takmark, og þegar er of mikið til af listamönnum, sem sakir andlegrar fátæktar reyna að vekja athygli á sér með fáránlegum fíflalátum. Skilyrði þess, að byltingar geti orðið í leikritun, er því vitanlega, að leikskáldin hafi eitthvað að segja- En leikritun nútímans hefur sýnt okkur, að til er f jöldi höfunda, sem mikið liggur á hjarta, og þeir hafa fundið þörfina fyrir ný túlkunarform, en svo virðist sem þeim takist ekki að brjóta af sér skelina. Það hlógu margir að litlum, mjög nýtízkulegum leik, sem málarinn Picasso skrifaði fyrir nokkrum árum og hét Le Désir attrapé par la queue. Samt var hann færður á svið á nokkrum smærri leikhúsum og víða lesinn upp, oftast fyrir völdum hópi áheyrenda. Hann vakti mikla athygli, ekki vegna þess, að um merkilegt bókmenntaverk væri að ræða, heldur hins, að hann var eins konar dadaisk tilraun til formbyltingar í leikritun. Það var líka hlegið, og ekki að ástæðulausu, að dadaistunum, sem fram komu í myndlist! eftir fyrri heimsstyrjöldina, en sýningar þeirra voru fyrirboði mikilla átaka í listinnii Byltingar verða sjaldan fyrir einangraða viðleitni einstaklinga, sem dreifðir eru um lönd, heldur er þeim hrundið af stað með sameiginlegu átaki og nánum hugartengslum nokkurra manna í sama landi, borg eða jafnvel innan kunningjahóps. Þannig myndaðist fyrir nokkrum árum í Bandaríkjunum flokkur leikara og leikskálda, sem hefur alið af sér nokkra þá höfunda, er hæst ber í listinni í dag, og 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.