Birtingur - 01.12.1961, Page 17
stafrófi. Ættingjarnir hafa því launað
honum lambið gráa með því að leyfa af-
skræmingu Pygmalions og drekkja henni
í dægurlagasöng og dansglennum, þess-
ari stúlku sem hann hafði haft svo mikið
fyrir að gera sívílíseraða. Nú hefur henni
verið hrundið niður á plan síns uppruna
að nýju og allt fyrirtækið útsett í kokkní.
Og nú stendur Guðlaugur Rósinkranz
og brasar þetta í kokkhúsinu. Koste hvad
det vil. Það er ekki verið að horfa í millj-
ónina. Hér er svo stór ídealismi á ferð-
inni að stóru viðhorfin gilda gagnvart
milljóninni en þau smáu gagnvart eyrin-
um. Eyririnn er sparaður jafnvel þótt
það kosti stórfé en hinsvegar teflt á
mestu tvísýnu með því að moka út hin-
um stóru summum í fyrirtæki sem er
ætlað allt öðrum aðstæðum en hér gilda.
Til hvers My fair lady í Reykjavík? Nú
er verið að kvikmynda þetta, væri ekki
miklu ódýrara að láta Guðlaug Rósin-
kranz hafa mánaðarkort í kvikmynda-
hús?
Þá er óleystur aðeins einn vandi. Með
hvaða móti verður Ingrid Bergman lokk-
uð hingað, hvernig væri hægt að fá hana
til að sitja eina kvöldstund við hliðina á
Guðlaugi Rósinkranz og útvega fjölmenni
til að taka eftir því? Hvernig sem ég
leita sé ég ekki nema tvær ástæður fyrir
My fair lady í Reykjavík. Primo: Rósin-
kranz þykir svoleiðis alveg agalega gam-
an að henni. Secundo: fyrirheitið að fá
að sitja hjá Ingrid Bergman.
Gæti hugsazt að það væru fleiri ástæð-
ur? Hverjar þá? Er þetta svona tíma-
bært? Er það svo tímabært að taka sjö
ára gamla óperettu sem er rétt bráðum
hægt að sjá á bíó með skemmtikröftum
sem eru valdir af heimsmarkaðnum? Ef
meiningin er að koma okkar fólki á
heimsmarkaðinn í þessu sambandi, þá er
þetta því miður of seint: það er búið að
velja í hlutverkin. Menningargildi? Er
kannski liægt að græða á þessu til að
sýna síðar verk sem hefur menningar-
gildi? Hvað réttlætir það að hætta stórfé
til þess að sýna þetta? Og jafnvel þó
væri von um gróða, skyldi það vera sam-
boðið þjóðleikhúsi?
Hver var að tala um musteri? Hver var
að tala um lifandi rödd?
Post Scriptum í próförk: Má ég þakka
skólapiltum úr Menntaskólanum fyrir
Upprisuhátíð Skugga-Sveins. Þetta voru
dýrlegir páskar eftir sýningu Þjóðleik-
hússins á Skugga-Sveini.
Sinfónían
Mikið er ánægjulegt að sjá þann fjölda
sem er farinn að sækja sinfóníutónleik-
ana upp á síðustuna. Nú er mikil festa í
rekstri hljómsveitarinnar. Hún nýtur
forustu Árna Kristjánssonar píanóleik-
ara. Og framkvæmdastjórinn Fritz Weish-
appel lætur ekki standa upp á sig og ann-
ast daglegan rekstur af nákvæmni og
kostgæfni sem er lífsspursmál slíku fyr-
irtæki. Háskólaslotið er snotur bygging
en ég er smeykur um að það sé eitthvað
orðum aukið sem einhverntíma var talað
um ágæti hljómburðarins. Fer ekki þessi
plasthiminn að koma? Hann kvað vera
kominn til landsins. Hvar er hann? Er
hann kannski í tolli? Getur Háskólinn
Birtingur 15