Birtingur - 01.12.1961, Síða 21
lega átt að geta séð, að hér var langur
aðdragandi og þróun í stíl, framsetningu
og viðfangsefnum, sem ekki er fyrir
hendi nú á dögum. Það er kaþólskur á-
bóti, Breuil að nafni, sem á mestan heið-
urinn af því, að sannfæra heiminn um
sannfræði og gildi þessara listaverka,
bæði frá listrænu, menningarlegu og
mannfræðilegu sjónarmiði, enda varið
mestum hluta ævi sinnar til að kynna sér
þau. (Hann er nú nýlátinn.)
Og nú er svo komið að heimurinn fylgist
af áhuga með hverjum nýjum fundi for-
sögulegra listaverka. Þau hafa fundizt á
ýmsum stöðum, einkum á Spáni og
Frakklandi, t. d. í Les Combrelles, Lacaux
1940 og Rouffignac 1956.
Þá eru hin svokölluðu Bushman-listaverk
í Suður-Afríku vel þekkt; um aldur þeirra
er ekki vitað, en á hinn bóginn er það
víst, að frumbyggjar Suður-Afríku hafa
til þess að gera til skamms tíma málað
myndir á kletta.
1 Saharaeyðimörkinni, einkum suður af
héraðinu Óran í Alsír, er mikið af kletta-
ristum, en það var ekki fyrr en 1933 að
Evrópumenn fundu þar einnig klettamál-
verk. 1 Evrópu eru flest forsögumálverkin
í hellum, en í Afríku aftur á móti eru
þau flest í skútum og yfirslútandi kletta-
þiljum.
Maður er nefndur Henri Lhote. Hann hef-
ur helgað mörg ár af ævi sinni til rann-
sókna á eyðimörkinni Sahara frá land-
fræðilegu, þjóðfræðilegu og fornleifa-
fræðilegu sjónarmiði. Hann var nemandi
Breuils ábóta, og það er því ekki að undra
þó hann fengi áhuga fyrir klettamálverk-
unum í Sahara.
Henri Lhote lét heldur ekki á sér standa,
þó hann kæmi ekki neinu í verk fyrr en
1956, bæði vegna stríðsins og nauðsyn-
legs undirbúnings. En þá kom hann af
stað leiðangri og stóð fyrir honum, með
liópi af listamönnum til að gera nákvæm-
ar eftirlíkingar af málverkunum. Að vísu
hafði hann með sér ljósmyndara og kvik-
myndatökumann, en aðstaða er mjög erf-
ið til myndatöku á þessum stöðum og
ljósmyndir verða hvergi nærri eins ná-
kvæmar og eftirmyndir þær, sem lista-
mennirnir gerðu.
Þeir höfðu þann hátt á, að þeir byrjuðu
á að mála eftirlíkingu af steinveggnum
eða bakgrunninum, þar sem myndirnar
voru; síðan tóku þeir gagnsæjan pappír,
lögðu hann á vegginn og teiknuðu mynd-
ina á liann, fylgdu nákvæmlega hverri
línu; síðan yfirfærðu þeir teikninguna á
vatnslitapappírinn og tóku síðan til að
lita myndina.
Þessi fyrri leiðangur stóð í tíu mánuði
og í honum voru fjórir listamenn auk
leiðangursstjórans og lósmyndarans. Með
þeim var einnig ung stúlka, málfræðingur
í mállýzkum eyðimerkurbúanna í fjöjlum
Sahara. Ilún var eins konar ráðskopa
þeirra og einkaritari um leið.
Sahara hefur ekki alltaf verið sú eyði-
mörk, sem hún nú er, og þaðan af síður
að gróðurleysi hennar stafi af því, að hún
sé gamall sævarbotn eins og lengi hefur.
verið haldið fram. Málverkin og aðrar
menjar, sem fundizt hafa sanna, að þar
hefur öldum saman verið blómlegt mann-
líf og fjölskrúðugt dýralíf, og þar af leið-
andi nægileg úi'koma og gróður. Að vísu
er talið að loftslag hafi breytzt, langvinn-
Birtingur 19