Birtingur - 01.12.1961, Qupperneq 24
Viðfangsefnið er fyrst og fremst menn og
dýr, en auk þess má sjá þar alls konar
helgiathafnir, vopn, verkfæri, heimilisá-
höld, egypzka báta og kerrur með hjól-
um.
Dýrin eru fyrst og fremst nautgripir og
hestar, en auk þess hundar, flóðhestar,
nashyrningar, fílar, gíraffar, alls konar
hjartar- og antilóputegundir, steingeitur
o. s. frv. Fuglar eru fáir aðrir en strútar.
Af þessari upptalningu má sjá, að hér er
einkum um veiðidýr að ræða. Ég minnist
ekki að hafa séð nokkra mynd af rán-
dýri.
Stíll hvers tímabils er svo frábrugðinn,
að furðu gegnir, því maður skyldi ætla
að hér hefði hver tekið upp eftir öðrum,
en eiginlega er fátt sameiginlegt með
þeim annað en viðfangsefnið og áhöldin
og litirnir sem notaðir voru. En hér er
tvennt sem kemur til greina: hinn langi
tími sem líður á milli og ólík viðhorf og
menningarástand. Auk þess getum við
leitt hugann að nútíðinni, því aldrei kem-
ur upp sú ný stefna í listum, að öll önnur
list sé ekki fordæmd og talin einskis nýt.
Og þó er listin að eilífu sú sama, það er
aðeins smekkurinn sem breytist; en hver
kynslóð verður að hella sínu nýja víni í
hið gamla ker. Það er einmitt vegna
þess, að listin er í innsta eðli sínu eilíf
og óumbreytanleg, að við getum enn í
dag notið listar þessara frumstæðu
manna.
Ekki er það enn vitað með vissu hvaða
þjóðflokkar byggðu þessi héruð í fyrnd-
inni, eða hvert þeir héldu þegar landið
varð óbyggilegt. Þó er hægt að þekkja
höfuðbúning í nokkrum myndum, sem
enn er notaður af þjóðflokki á vestur-
strönd Afríku. Um eitt skeið hafa lista-
mennirnir orðið fyrir mjög áberandi
sterkum áhrifum af egypzkri list- Tvenn-
ar tilgátur eru uppi um það, hvernig á
því standi. Önnur er sú, að Egyptar hafi
tekið menn til fanga af þjóðflokki þeim,
sem Tassílifjöllin byggði og þeir lært af
Egyptum listina — og síðan sloppið heim
aftur. Hin er sú, að Tassílimenn hafi tek-
ið egypzka listamenn til fanga og þeir
síðan málað myndirnar. Þykir mér síðari
skýringin öllu sennilegri, því hér er um
fullkominn egypzkan stíl að ræða, þar
sem bæði stellingarnar og uppstillingarn-
ar vísa beint til föðurhúsanna. Auk þess
eru hér myndir af guðum Egypta, Iris og
Ósíris, og af egypzkum kerrum og bátum.
En væri það ekki sennilegasta skýringin,
að Egyptar hefðu um eitthvert skeið lagt
land þetta undir sig og útbreitt þar
menningu sína?
Litirnir eru fremur fábreyttir og aðeins
úr þeim efnum sem hægt var að finna á
staðnum. Ber þar mest á jarðlitum eða
okkur-litum, gulum, rauðum og rauðbrún-
um, en með blöndun fá þeir fram grænt
og fjólublátt. En auk þess nota þeir svart
eða dökkbrúnt og hvítt. Sumar myndirn-
ar eru bryddaðar með hvítu, aðrar eru
með skörpum útlínum.
Hér eins og víðasthvar þar sem forsögu-
leg listaverk hafa fundizt, er mannshönd-
in sýnd útaf fyrir sig. Er þá ýmist litur
borinn á höndina sjálfa og henni síðan
þrýst á vegginn, eða höndin lögð á stein-
inn og litnum síðan sprautað með munn-
inum yfir höndina og kringum hana, svo
að far hennar situr eftir. Ekki vita menn
22 Birtingur