Birtingur - 01.12.1961, Side 40

Birtingur - 01.12.1961, Side 40
Massachussets, og einnig lektor í spönsku við Oxford og Svartaskóla. Guillén hefur þýtt á spönsku Valery og Claudel. Jorge Guillén er skáld einnar bókar, sem stækkaði alltaf, úr 75 ljóðum (1928) í 334 (1950). Þessi eina bók heitir „Cán- tico“ og er nær því óslitinn lofsöngur um undrið mikla: að vera til. Aðferð Guilléns er að útrýma úr ljóðum sínum öllum persónulegum áhrifum. Hann vill tala um „einfaldan", ekki „hreinan" kveðskap. En með því að þurrka út úr Ijóðum sínum persónuleika skáldsins verða ljóð hans köld, þurleg í einmanaleika sín- um, svipt varma mannlegs hjarta; þau verða skilgreining, náköld skilgreining sem vekur áhuga, jafnvel aðdáun, en hríf- ur ekki, hrærir ekki, snertir engan streng. Guillén er áreiðanlega eitt mesta skáld okkar tíma, en hann er á mörkum, eins konar varða sem sýnir yztu takmörk, einskonar „finis terrae", og líklega ekki á annarra manna færi að jafnast við hann, þó áhrifa hans gæti mikið meðal ungra höfunda. Existensjalisminn (Existenciaalismo) á sinn fulltrúa í spanskri ljóðagerð innan vébanda surrealismans og undir fána hreinnar Ijóðlistar. Hann heitir Vicente ALEIXANDRE (1900— ). Hann er fæddur í Sevilla, fékk Premio Nacional de Literatura 1933 og er meðlimur spönsku Akademíunnar síðan 1949. Áhrifa hans gætir mjög meðal ungra skálda sem kvöddu sér hljóðs eftir 1939, ef til vill vegna þess að hann hefur alltaf búið í heimalandi sínu. Aleixandre er maður mjög einrænn, ein- angrar sig, sækir aldrei í félagsskap. Hann kærir sig kollóttan um form og hrynjandi, sýnir í verkum sínum engan áhuga á mönnum, atvikum, málefnum Hann yrkir úr djúpi angistar sinnar og hefur skapað sér sérstakan heim úr ljóð- um sínm. I þessum heimi lifir hann og hann og hans heimur fylla Ijóð hans. En Aleixandre er svo mikið skáld að jafnvel í raunum sínum vekur hann ekki meðaumkun hjá lesandanum, heldur aðdáun á því að slík sorg skuli vera borin svo stórmannlega. Kjarni existensjalismans í spönsku ljóð- listinni er sjálfselskan, sjálfskönnunin, sjálfsdýrkun. Samt er hið sanna skáld í þessum anda hroinskilið í sinni trú á að einstaklingurinn sé aðalmælikvarði sköp- unarverksins, að sjálfið sé ómissandi hluti alheimsins og ef einn maður, eitt skáld bogni undan farginu muni sjálf himin- festingin hrynja. Því er hver skáld-ein- staklingur dýrmætur þáttur í leitinni að hinu eilífa og algilda. Aleixandre lýsir í ljóðum sínum þessu æðsta hlutverki skáldsins, að vera til: að tjá sig. Ljóðabækur Aleixandres eru: „Espadas como labios“ (Sverð eins og varir, 1932). „La destrucción o el amor“ (Eyðilegging eða ást, 1935), „Sombra del paraíso" (Skuggi paradísar, 1944), „Mundo a so- las“ (Einmana heimur, 1950), „Naci- miento último“, 1953 (Síðasta fæðing), „Historia del corazón“ (Saga hjartans, 1954). Full ástæða er til þess að kynna sér verk þriggja annarra stórskálda í fylkingu 3£ Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.