Birtingur - 01.12.1961, Qupperneq 60
komnu tækni) á undan þotunni til Pek-
ing\ Skilur nokkur slíkt undur?
Kristinn E. Andrésson er vel ritfær
maður. Þó bregður svo við á þessari bók,
að hún er mestan part rituð á blæbrigða-
lausu blaðamáli. Helzt gætir nokkurra til-
þrifa þar sem hann segir frá eigin áhrif-
um og framtíðarsýnum. En þá hættir frá-
sögninni við að snúast upp í svo há-
stemmdan gælutón, að það er eins og
lukkulegur afi haldi á fyrsta barnabarni
sínu, hampi því framan í nærstadda og
segi: sjáið þið hvað hann er myndarleg-
ur, litli anginn? Verður það býsna kátlegt
stundum vegna stærðarhlutfalla „litla
angans“ og afans.
Aftan við ritgerð Kristins eru um 150
myndir, margar í litum. Þær eru úr riti,
sem forlagið Neues Leben 1 Berlín hafði í
prentun, og lét það myndasíðurnar í té
fuilprentaðar. Um þessar myndir er gott
eitt að segja í sjálfum sér. En myndir
sem fylgja „ferðasögu frá Kína“ árið 1959
þurfa auðvitað að vera þannig valdar, að
þær skýri og fylli þá mynd af Kína nú-
tímans, sem dregin er í lesmálinu. Ef þær
gegndu hlutverki sínu fullkomlega, ættu
þær ekki að geta verið frá öðrum stað né
tíma en Kína vorið 1959. Það er augljóst
mál að myndasafn úr allt öðru riti gæti
ekki fallið að efni slíkrar bókar, nema ef
svo hending tækist. En hér við bætast
aðrir ágallar myndanna sem fróðleiksefn-
is um alþýðulýðveldið Kína:
1. Sumar myndanna gætu verið hvaðan
úr heiminum sem er (nr. 20, 54, 68,
84, 108, 123, 132, 140).
2. Aðrar eru mannamyndir sem segja
manni fátt annað en að fyrirsæturnar
virðast yfirleitt vel skaptar manneskj-
ur og mjög brosmildar flestar (nr. 2,
15, 24, 44, 59, 64, 73, 79, 61, 82, 93,
107, 129, 130, 137—139, 141, 142).
3. Enn aðrar bera alls ekki með sér að
þær séu frá Kína: gætu allt eins verið
frá ýmsum löndum öðrum á austur-
slóðum (nr. 4, 5, 8, 12, 14, 17, 23, 25,
26—29, 35—37, 41—43, 46, 48, 53, 57,
62, 69, 71, 74, 85, 89, 92, 95, 102, 106,
114, 115, 124, 135).
4. Þá eru myndir sem augsýnilega eru frá
Kína, en gætu eins verið frá því fyrir
byltingu, fyrir aldamót, jafnvel fyrir
Kristsburð, ef ljósmyndavél hefði þá
verið til (nr. 6, 10, 11, 13, 16, 18, 30,
31, 38—40, 45, 47, 55, 56, 58, 60, 65—67,
70, 75—78, 83, 86—88, 90, 91 (í allri
dýrðinni stendur hún á höfði í því ein-
taki, sem ég hef með höndum), 94, 96,
98—101, 103, 104, 109—113, 116—
122, 125, 126, 131, 143, að ógleymdri
hlífðarkápunni.
Eftir eru þá innan við 30 myndir, sem
segja má að lýsi með einhverjum hætti
störfum og daglegu lífi Kínverja í dag;
hefði mátt dreifa þeim á viðeigandi staði
í lesmálinu, en fjarlægja ýmsar þeirra
mynda, sem þar eru, því þær eru fæstar
markverðar.
Hvort sem litið er á lesefni eða myndir
verður niðurstaðan ein og söm: þetta er
fánýt fordildarbók sem Heimskringla
hefði átt að neita að gefa út. En það hef-
ur nú kannski verið hægara ort en gjört.
Spurningunni að framan mundi ég svara
á þessa lund: Byr undir vængjum er gef-
in út handa þeim íslenzku snobbhönum,
sem hafa að bræðrareglu sinni inngangs-
58 Birtingur