Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1987, Síða 85
Um leyfilegar raðir ífornu máli og nýju
83
astur, knár og frár hafa hins vegar stundum foma beygingu í miðstigi
og efsta stigi: knár - knárri - knástur,frár - frárri -frástur.20
3.2
Vegna þessara mismunandi reglna koma oft fram ólíkindi milli karl-
kyns og kvenkyns: áanna og ánna,fióanna o gflónna. Þessi sami munur
kemur einnig fram í þágufalli fleirtölu með og án greinis, sbr. 3.3. skór
er eina karlkynsorðið sem varðveitir fomar reglur og hagar sér í eignar-
falli fleirtölu (og einnig þágufalli fleirtölu) eins og einkvæðu kvenkyns-
orðin, sbr. skór - skóa - skónna en hins vegar móar - móa - móanna.
3.3
Raðimar -áu, -óu, -úu. Það að þessar raðir skyldu ekki leyfðar í fomu
máli hafði mestar afleiðingar í þágufalli fleirtölu nafnorða en einnig í
lýsingarorðum og sögnum.
Nú eru þessar raðir alitaf leyf ðar í öllum þáttum sagnbeygingarinnar:
snúum, sáuð, hóum, svo að dæmi séu tekin. í lýsingarorðum eru þær
einnig alltaf leyfðar og koma þær fram í sterkri beygingu í frumstigi í
þágufalli eintölu í karl- og hvorugkyni og þágufalli fleirtölu allra kynja:
smáu og smáum, mjóu og mjóum, trúu og trúum; einnig í veikri beyg-
ingu: smáu, mjóu, trúu. Undantekningu má finna í orðasambandinu
smám saman þar sem hið forna ástand er enn varðveitt.21
Meðal nafnorða er það meginreglan að þágufall fleirtölu endi á -um\
það á við um öll nafnorð önnur en þau einkvæðu kvenkynsorð sem hér
hafa verið til umræðu svo og hvorugkynsorðin hné og tré (hins vegar
ekki vé, hlé o.fl.) og karlkynsorðið skór.22 Eru þetta sömu orð og hafa
20 Jón Friðjónsson (1983:41) gefur hins vegar í bók sinni, þó innan sviga, efsta stigs
myndimar knáastur ogfráastur.
21 í þessu sambandi er rétt að geta lýsingarorðanna mjór og sljór. Fyrra orðið stig-
breytist mjórri og mjóstur og því má gera ráð fyrir veikri mynd í efsta stigi mjóstu
en ekki *mjóustu. Noreen (1970:299) skýrir þessi atriði í stigbreytingunni sem áhrifs-
breytingu og hefur hún varðveist til þessa. En þessi -óu-röð er varðveitt f sljór - sljórri
- sljóastur, sljóustu. í efsta stigi af trúr kemur röðin líka fram, trúustu.
22 Eins og margoft hefur komið fram er skór eina karlkynsorðið í hópnum. Þó má
finna það sama í karlkynsorðinu hár í orðasambandinu róa öllum hám þar sem hám er