Ritmennt - 01.01.2000, Page 31
RITMENNT
EGGERT Ó. GUNNARSSON
í handritasafni Landsbólcasafns er brot af dagbók Eggerts frá
þessari ferð; í Lbs 4672 4to.118 Handritskverið er u.þ.b. 10x15 sm
á stærð, í því eru 16 blöð af hvítum pappír saumuð inn í bláan
pappír sem þjónar sem bókarkápa, og er umbúnaður handritsins
með sama hætti og á minnisblöðum Eggerts, þótt brotið sé
nokkru stærra. Auk þess fylgir ein opna úr stílabók, þar sem síð-
asti hluti dagbókarinnar er færður, svo og aultablað með minnis-
atriðum.
Reyndar er dagbókarbrotið, eins og minnisblöð Eggerts,
ómerkt af honum en framan á það er skrifað með annarri hendi:
„Dagbókarbrot Eggerts Gunnarss(onar) er hann fór utan með
amtmanni (1863 ?)."
Það má einnig álykta af atriðum sem fram koma í dagbókinni,
að Eggert sé skrásetjari hennar, svo og af heimildum um ferð
hans til Danmerkur. En samkvæmt dagsetningum sem fram
koma í lok dagbókarinnar hlýtur hún að vera skrifuð á árinu
1862, en ekki 1863, enda kemur það fram í heimildum, sem
nefndar voru, að ferðin var farin 1862.
Glatast hefur framan af dagbókinni og hefst sá hlutinn, sem
varðveittur er, þar sem Eggert er að skoða kirltjur í Kaupmanna-
höfn, er þá kominn dagurinn 10. ágúst og gætu þá verið 1-2 vik-
ur frá því að þeir mágar komu til Danmerkur.
Þetta dagbókarbrot verður birt hér óstytt, stafsetning færð að
nútíma rithætti en orðmyndir látnar halda sér. Bætt er úr aug-
ljósum pennaglöpum ritarans og styttingar hans ritaðar fullum
stöfum innan sviga. Þá er reynt að leita skýringa á þeim atriðum
í textanum, sem óljós eru, eftir því sem unnt er.
Dagbókarbiot Eggerts Gunnarssonar
er hann fór utan með amtmanni
Þaðan gengum við til Frúarkirkju og var þar verið að syngja
útgöngusálm að ég hélt, svo beið ég við og hlustaði á sönginn,
sem var dæmalaust fallegur, þangað til endað var. Gekk þá
fóllc inn til prestsins og las hann upp úr sér yfir þeirn nokkur
118 Handritið er komið frá Þórði Jónatanssyni á Öngulsstöðum, en mun vera úr
fórum Jóns Jónatanssonar bróður hans en Jón var urn árabil ráðsmaður Egg-
erts Gunnarssonar á Syðra-Laugalandi, áður en hann fór að búa á Önguls-
stöðum.
27