Ritmennt - 01.01.2000, Qupperneq 48
BIRGIR ÞÓRÐARSON Á ÖNGULSSTÖÐUM
RITMENNT
Svo fór að lokum að fjármál Eggerts urðu honum svo erfið að
hann sá sér ekki fært annað en að flytja úr landi árið 1884. Mun
hann fyrst hafa dvalið í Danmörku en flúið þaðan undan skuld-
heimtumönnum til Englands. Til er bréf þar sem lýst er drama-
tískum flótta Eggerts úr landi.164 Bréfið ritaði fóhannes Daníels-
son,165 sem þá var skólasveinn í Reykjavík, til föður síns, séra
Daníels Halldórssonar.166 Bréfið er dagsett 25. mars 1884. Þar
segir m.a. (stafsetning bréfritarans):
[...] ekkert markvert ber við nema ef vera skyldi flótti Eggerts Gunnars-
sonar, sem kom hingað sama kvöldið, sem póstskipið fór; úr öllum átt-
um komu menn til hans, til þess að krefja hann skulda, og Jóhannes
Ólafsson, málaflutningsmaður, sat um hann, en Eggert komst undan
Jóh(annesi) og snjeri rukkatorana [svo] einhvern veginn af sjer, fleygði
sjer á vatnsstígvélunum og reiðfötunum upp í rúmið sitt, því hann kom
þreyttur af langferð, sem hann byrjaði eða hóf skömmu fyrir jólin í vet-
ur, og svaf þangað til píft var á póstskipinu í fyrsta sinn, þá komu menn
er Eggert hafði keypt til þess að standa niður við sjó um nóttina, reiðu-
búnir til þess að róa með hann fram, þegar tími væri til kominn; þessir
menn vöktu Eggert og settu hann fram í skipið og það vita menn síðast
um hann.
Með þessari ferð póstskipsins snemma árs 1884 mun Eggert
Gunnarsson hafa yfirgefið ættjörð sína í síðasta sinn og hefur þá
að líkindum farið beint til Danmerltur. Fer þá rnjög að sneyðast
um áreiðanlegar heimildir um ævi hans úr því.
í handritadeild Landsbólcasafns167 eru varðveitt allmörg bréf
Klemensar Jónssonar168 sem hann ritaði föður sínum, Jóni Borg-
firðingi, á námsárum sínum í Kaupmannahöfn. í þremur þessara
bréfa minnist Klemens á dvöl Eggerts í Danmörlcu veturinn
1884-85. í fyrsta bréfinu, sem dagsett er 14. janúar 1885, segir
svo (í tilvitnunum í bréfin er fylgt stafsetningu bréfritarans):
Eggert Gunnarsson er að þvættast [svo] hjer, hann hefur lcomið
nolclcrum sinnum upp á Garð til oklcar Sigga og er hinn lcátasti, það fær
elclci milcið á hann, þó hann eigi í þessum vandræðum.
164 Lbs 3516 4to.
165 F. á Hrafnagili 17. apríl 1862, d. í Reykjavík (i skóla) 8. maí 1886.
166 F. 20. ágúst 1820, d. 10. sept. 1908. Prestur í Glæsibæ, á Hrafnagili og á
Hólmum í Reyðarfirði.
167 ÍB 99 fol.
168 F. á Akureyri 27. ágúst 1862, d. í Reykjavík 20. júlí 1930. Landritari og sýslu-
maður. Ritaði mikið um sagnfræðileg og lögfræðileg efni.
44