Ritmennt - 01.01.2000, Page 50
BIRGIR ÞÓRÐARSON Á ÖNGULSSTÖÐUM
RITMENNT
Séra Benjamín Kristjánsson tók saman þátt um Eggert Gunnarsson
og birti hann í riti sínu Eyfirðingabók I. Þar er hann að velta fyrir
sér afdrifum Eggerts og segir að birst hafi við hann viðtal í blaði í
Minneapolis þar sem hann kvaðst vera á leið til frænda sinna og
vina í Norður-Dakota. Ekki er vitað hvað séra Benjamín hefur haft
fyrir sér um þetta blaðaviðtal. En í minnisblaði, ódagsettu, sem
hann hefur skrifað í einni ferð sinni til Ameríku segir hann:
Þessa dagana voru mér mjög hugarhaldin örlög Eggerts Gunnarssonar,
hins eldheita hugsjónamanns, sem 45 ára hvarf úr sögu lands síns og
lýðs vestur um haf til að leita gæfunnar, sem gengið hafði honurn úr
greipum heima. Saga segir að síðast hafi spurst til hans í Minneapolis,
en sumir segja Chigago. Bróðir Eggerts hét Geir Finnur og var hann
tengdasonur séra Jóns Kristjánssonar frá Illugastöðum.
Geir fór vestur, dvaldi eitthvað í Dakota en andaðist í Winnipeg 3.
mars 1899. Dóttur átti hann er Halldóra hét, sem giftist Þórði Helgasyni
frá Brúarfossi í Mýrasýslu. Er hún enn á lífi, húsett í Vancouver á Kyrra-
hafsströnd. Dóttir hennar Regína Eiriksson er búsett í Minneapolis og
hitti ég hana í samkvæmi kvenfélaganna og kom seinna heim til henn-
ar. Hún er ekkja og á sér eina dóttur barna, sem gift er Vilhjálmi Bjarn-
ar frá Rauðará, námsmanni í Minneapolis. Mrs. Eiriksson talar ágæta ís-
lenzku og er mjög aðlaðandi lcona. Fór ég að spyrja hana um bréf frá Egg-
ert, hvort nokkur væru hjá henni eða ættmönnum hennar, því sennilegt
þótti mér að E. hefði skrifað bróður sínum áður en hann fór vestur eða
á leiðinni. Elcki vissi hún um nein bréf úr búi afa síns og taldi að hefðu
einhver verið mundu þau nú glötuð.
Seinna hafði ég spurnir af því frá móður hennar, að Geir Finnur
rnundi aldrei hafa haft hugmynd um örlög hróður síns. Hélt hann eitt
sinn að hann hefði séð Eggert stíga út úr strætisvagni í Winnipeg, hljóp
á eftir honum en týndi honum í mannþröngina. Sennilega hefur það
ekki verið annað en missýning.171
Vió andlát Geirs Finns birtist um hann minningargrein í blaðinu
Lögbergi í Winnipeg. Þar telur höfundur greinarinnar upp syst-
lcini hans og segir: „(...] og Eggert Ólafur, lengi klausturjarða-
umboðsmaður (dáinn fyrir nokkrum árum)."172
Eklci er ljóst hvort ritari minningargreinarinnar hafði öruggar
heimildir um andlát Eggerts eða setti þarna fram almenna
skoðun manna.
171 Úr óprentuðum handritum séra Benjamíns Kristjánssonar. í handritasafni
Landsbókasafns.
172 Lögberg nr. 11, 1899.
46