Ritmennt - 01.01.2000, Page 78
STEINGRÍMUR JÓNSSON
RITMENNT
Þjóöminjasafn íslands.
Jón Jónsson landshöfðingjaritari (1841-83).
í júní 1877 var Jón ritari enn einu sinni á
ferð. Spurði hann þá Þórð prófast um úrslit-
in með krónurnar og sagði Þórður honum
og sýndi drenginn sem var staddur í Reyk-
holti. Jón ritari fór síðan vestur að Hjarðar-
holti á Mýrum þar sem Theodor Jónassen
sýslumaður, hálfhróðir Þórðar, bjó. Þangað
stefndi Jón ritari Steingrími Grímssyni. Jón
ritari hafði í félagi við Björn Jónsson rit-
stjóra ísafoldar keypt prentsmiöju13 - Jón
ritari var aö „minnsta kosti meðeigandi
hennar þótt það væri eigi kallað svo" slcrif-
ar Jón Steingrímsson í æviágripi sínu 1887 -
og sett hana upp í Reylcjavík nokkrum dög-
um fyrr og nefnt hana ísafoldarprentsmiðju
af því að blaðið ísafold skyldi prentað þar.
í Hjarðarholti samdi Jón ritari við Stein-
grím um að Jón skyldi tekinn í ísafoldar-
prentsmiðju til að læra prentlist. Samning-
urinn er svohljóðandi:
Við undirskrifaðir eg Jón Jónsson fyrir hönd
Björns ritstjóra ísafoldar og eg Steingrímr Gríms-
son frá Kópareykjum höfum kornið olckr saman
um þessi atriði.
1. Eg Steingrímr ræð son minn Jón Stein-
grímsson 15 ára gamlan til kenslu og vistar sem
prentlærisvein í prentsmiðju Isafoldar í 3 ár frá 1.
júlí þ.á. Skal hann vera kominn fyrir þenna dag í
prentsmiðjuna, og skal hann skyldr til að vinna í
henni og vera sem dyggt hjú eigandanum eða
prentstjóranum hlýðinn og dyggr í öllu, sem við
kemr stöðu hans sem prentlærisveinn þessi 3 ár.
2. í 1 1/2 mánuð frá 1. júlí þ.á. skal bæði syni
mínum og húsbónda hans heimilt að segja upp
vistinni eða kennslunni.
3. Syni mínum ber, meðan hann er í prent-
snriðju Isafoldar, kauplaust hús, föt, skæði og
fæði; en engin önnur laun bera honum, áðr en
nefnd 3 ár eru liðin.
4. Eg Jón Jónsson geng að þessurn skiimálum
fyrir hönd Björns ritstjóra og ábyrgist að eg hafi
þar til löglegt umboð og að farið verði vel og
sómasamlega með drenginn meðan hann reynist
trúr og dyggr.
St. Hjarðarholti 25. júní 1877
Jón Jónsson
Jón sem orðið hafði fimmtán ára gamall átta
dögum fyrr slcyldi með öðrum orðum vera
kominn til Reykjavíkur innan viku. Sjálfur
segir Jón svo frá í minningabroti sínu er
hann skrifaði 1884:
13 Aðrir meðeigendur ísafoldarprentsmiðju 1877 voru
Árni Thorsteinsson landfógeti og Jón Þorkelsson
rektor (Klemens Jónsson (1930), bls. 152).
74