Vera


Vera - 01.04.2003, Qupperneq 3

Vera - 01.04.2003, Qupperneq 3
/ LEIÐARI Misfellurnar sem þarf að laga Femínistafélag íslands sem stofnað var 14. mars og hefur innan sinnan vébanda ell- efu starfshópa sem tengjast málefnum. Femínistafélagið hef- ur lýst yfir stuðningi við VERU með því að líta á blaðið sem málgagn sitt. Því er hér með fagnað. Vinstri grænir fyrir að leggja það til á Alþingi að kaup á vændi verði gert refsivert. Því miður sáu aðeins þrír þingmenn ástæðu til að styðja þingflokk VG í þessu máli, þau Jóhanna Sigurðardóttir, Sigríður Jóhannesdóttir og Guðjón A. Kristjánsson. Vonandi bætast fleiri í hópinn næst. Harpa Njáls fyrir óþreytandi elju sína við rannsóknir á íslensku velferðar- kerfi og aðstæðum þeirra sem þurfa að treysta á það. Nýút- komin bók hennar, Fátækt á Islandi, er mikilvæg heimild fyrir Þau sem vilja vinna að því að bæta kjör þess fólks sem verst er sett. Flugleiðir - lcelandair fyhr neikvæða afstöðu gagnvart þeirri gagnrýni sem sett hef- ur verið fram á kynlífstengda auglýsingastefnu félagsins er- lendis, m.a. með undirskriftalistum. Nú stefnir í að félagið verði kært - hefði ekki verið betra að viðurkenna bara mistökin? Iceland Express fyrir að taka að sér að bjóða karlmönnum tilboðsferðir til Is- lar>ds til að vera í VIP klúbbi á Ungfrú Island.is. Er ekki hægt að reka flugfélag hér á landi án þess að miða markaðssetning- una við að veita aðgang að íslensku kvenfólki? Við ákváðum að kalla umfjöllun okkar hér í blaðinu „holdafars dómstól" eftir miklar umræður um kjarna þess sem við vildum segja. Af hverju erum við stöðugt að mæla út holdafar hvert ann- ars með dómaraaugum? Hvers vegna leggjum við svona mikið á okkur til að minnka ummálið um nokkra sentimetra? Af hverju erum við ekki bara ánægð með okkur eins og við erum og njót- um lífsins? Slíka vellíðan getum við einmitt öðlast með því að njóta hæfilegrar og hollrar fæðu og hæfilegrar og hollrar hreyf- ingar. Hugsið ykkur hvílíka óhamingju við leggjum á fólk sem er feitara en staðalímyndin leyfir, t.d. þegar börn og unglingar verða fyrir einelti vegna hoidafarsins. Þessi þrýstingur getur síð- an leitt af sér hörmungar í hina áttina þegar fólk, (einkum ungar konur), sveltir sig til að fylla upp í útlitsstaðlana og getur upp úr því fengið alvarlega átröskunarsjúkdóma. „Þú mátt ekki ganga að speglinum og segja við sjálfa þig: Helvíti er ég sæt og flott, heldur koma auga á allar misfellurnar sem bæta þarf úr," segir Þorgerður Þorvaldsdóttir í upphafs- greininni um holdafars dómstólinn. Þar segir hún einnig frá óformlegri könnun um afstöðu fólks til líkama síns sem nemend- ur Listaháskóla (slands gerðu í tengslum við sýninguna Óður til líkamans á Menningarnótt í fyrra. (Ijós kom að karlarnir voru al- mennt sáttir við hvernig þeir litu út en 91% kvennanna voru ekki sáttar við útlit sitt. Þær vildu ýmist vera hærri, grennri eða brjóstastærri en þær voru í rauninni. í umræðum okkar um holdafars dómstólinn barst talið einnig að fatastærðum i verslunum en það er algengt að íslensk- um konum finnist óþægilegt að máta föt í tískubúðum því þær komast aðeins í stærstu númerin og varla það. Þegar XL er orðið of lítið, hvernig upplifir kona sig þá í samanburði við aðrar kon- ur? Þessi staðreynd hlýtur að vera órækur vitnisburður um að hún sé allt of feit og þurfi að gera eitthvað róttækt i málunum. Og ef henni gengur ekkert að léttast á hún þá ekki skilið að ganga í fallegum fötum. Eða hvað? Gæti verið að það væri eitt- hvað að fatastærðunum? Af hverju hafa útlitsstaðlar miklu meiri áhrif á konur en karla? Hverjir búa þá til og af hverju er útlitskröfunum miklu fremur beint að kvenkyninu en karlkyninu? Þetta eru sígildar spurningar kvenfrelsissinna - því hvað er það annað en áþján að láta kröfur af þessu tagi stjórna lífi sínu? Þessi barátta hefur tekið á sig margar myndir í gegnum tíðina og m.a. getið af sér þjóð- söguna um „Ijótu, feitu kvenremburnar" sem ekki þola að aðrar konur séu fallegar. Það er því mikið fagnaðarefni að staðalímyndahópur Femínistafélags fslands skuli hafa tekið á nýjan og ferskan hátt upp baráttuna gegn fegurðarsamkeppnunum sem eru svo vin- sælar hér á landi. Frá þeirri baráttu mun VERA greina á næstunni. Það er nefnilega ekki víst að aðrir fjölmiðlar telji sér skylt að segja ítarlega frá „slíku brölti". vera / leiðari / 2. tbl. / 2003 / 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.