Vera - 01.04.2003, Blaðsíða 48
/KONUR í FERÐAÞJÓNUSTU
Konur hafa í auknum mæli haslað sér völl í ferðaþjónustu
»Vera náði tali af fjórum atorkukonum sem eiga og reka
ferðaþjónustufyrirtæki.
Hvalaskoðun frá Reykjavíkurhöfn
Elísabet
Þorgeirsdóttir
Rannveig Grétarsdóttir hefur verið framkvæmdastjóri Eld-
ingar - hvalaskoðunar frá stofnun fyrirtækisins árið 2000.
Fyrirtækið hafði aðsetur í Sandgerði fyrsta árið, næsta sumar
var flutt til Hafnarfjarðar þar sem skrifstofurnar eru til húsa
en sumarið 2002 var aðsetur bátanna flutt að Ægisgarði í
Reykjavíkurhöfn og verður þar áfram. Rannveig segir að að-
sókn hafi farið fram úr öllurn vonum. Fyrsta sumarið voru far-
þegarnir um 2000, næsta sumar 6.500 og í fyrra fóru 10.500
farþegar með bátunum tveimur sem fyrirtækið rekur.
„Pabbi minn, Grétar Sveinsson, hafði lengi átt sér þann draum að
eignast bát. Hann er byggingameistari en fjölskyldan rekur
einnig verktakafyrirtæki. Sumarið 2000 keyptum við svo bátinn
Eldingu og hófum að bjóða upp á hvalaskoðunarferðir. Elding
var áður aðstoðar- og björgunarskip og tekur yfir 100 farþega.
Við bættum síðan víð öðrum báti sem tekur 38 farþega þegar við
sáum hvað viðtökurnar voru góðar. Ég tók að mér rekstrarhliðina
meðfram starfi mínu sem deildarstjóri í fjármáladeild Islenska út-
varpsfélagsins. Ég lærði iðnrekstrarfræði í Tækniháskólanum og
hóf MBA nám við Háskólann í Reykjavík sl. haust með mannauðs-
stjórnun sem aðalgrein," segir Rannveig og bætir við að þá hafi
hún reynar hætt störfum hjá Islenska útvarpsfélaginu eftir sex
ára starf og snúið sér alfarið að rekstri fyrirtækisins. „Við erum tvö
sem stýrum rekstrinum, ég og aðalskipstjórinn okkar, Vignir Sig-
ursveinsson, sem er jafnframt rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu."
Kvöldsigling upp í Hvalfjörð
„Það kom okkur skemmtilega á óvart hvað staðsetning bátanna í
Reykjavík kemur vel út. Um þriðjungur farþeganna kemur beint
af götunni. Fólki finnst gott að geta séð bátinn og metið veður
og aðstæður áður en það ákveður að fara í sjóferð, frekar en að
bóka fyrirfram. Um 90% farþeganna eru útlendingar, (slendingar
koma frekar í hópferðir og í sjóstangaveiði. Við bjóðum tvær
ferðir á dag í apríl og maí en þrjár ferðir yfir hásumarið. Ifyrra hóf-
um við kvöldsiglingar upp í Hvalfjörð með hópa og það fékk
góðar viðtökur. I ferðinni bjóðum við ýmislegt til skemmtunar,
t.d. sæþotur (jet ski) sem fólk getur leikið sér á í kringum bátinn.
Þær eru eins og snjósleðar á sjó og til að aka þeim þarf fólk að
hafa bílpróf eða bifhjólapróf. I Hvalfjarðarferðunum er farið í land
í Hvammsvík þar sem hægt er að fara í kajakróður, veiða silung,
spila golf og borða góðan mat."
Um leiðsögn í hvalaskoðunarferðunum hefur bresk kona,
Janine Eaton, séð eða valið með sér fólk sem hún treystir. Janine
vann við leiðsögn í hvalaskoðun á Húsavík og aðstoðaði við upp-
byggingu Hvalasafnsins þar. Hún hefur einnig unnið með fyrir-
tækjunum Discover the World og Arctic Experience sem hafa
komið með marga ferðamenn til landsins."
Rannveig segist fara með í ferðirnar ef með þarf. Hún tók
námskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna en mikil áhersla er lögð
á öryggismál í ferðum Eldingar. „Pabbi tók annars stigs vélstjóra-
próf og getur nú bæði leyst af vélstjórann og ekið rútunni, bróð-
ir minn hefur séð um öll tækjamál um borð en hleypur einnig *
skarðið í akstrinum en þeir vinna annars báðir í verktakafyrirtæk-
inu okkar. Þetta er því sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Við höfum
fengið ágætar bókanir fyrir sumarið svo ég er bara bjartsýn á
framhaldið," segir Rannveig og bætir við að alltaf sé nóg af hvöl-
um að sjá - hnísur, höfrungar, hrefnur og hnúfubakur.
Ef híns vegar ekkert sést fær fólk aðra ferð frítt, en það er
mjög sjaldgæft.
Nánar á www.elding.is
48 / konur í ferðaþjónustu / 2. tbl. / 2003 / vera