Vera - 01.04.2003, Blaðsíða 32
/FEMÍNISTAFÉLAG ÍSLANDS
þ.e. allt sýnt út frá karllægu augnaráði
og sjónarhorni.
Dóms og kirkjumálaráðuneytið sá
ástæðu til að setja saman nefnd um
klám og vændi enda klám og vændi
náskylt. Hér er örlítið brot úr niður-
stöðu nefndarinnar.
Vaxandi framboð á x grófara efni
getur breytt vitund fólks um það hvað sé
eðlilegt og sjálfsagt. Þannig er líklegra
að þeir sem selja eða dreifa klámi leitist
sífellt við að ganga lengra og lengra í að
sýna grófara oggrófara klámefni.
Og nefndin telur ennfremur að eft-
ir því sem umburðarlyndi fólks vaxi þá
aukist framboð á grófara klámefni.
Á síðasta ári fjölgaði komum til
Stígamóta um 13.3%. Fjölgunin hefur
verið stöðug sl. fjögur ár. Þegar tölurn-
ar eru bornar saman við sl. ár er ljóst
að mest fjölgun varð vegna nauðgana
eða um 40%.
Ég hef hér rétt stiklað á stóru um af
hverju enn er þörf á femínistum og
femínískri hreyfmgu. Málefnin til að
takast á við eru hinsvegar mun fleiri,
eins og tillögurnar að femínísku starfs-
hópunum innan Femínistafélags ís-
lands bera vitni um.
Miklir fordómar ríkja í samfélagi okk-
ur í garð femínista. Ég hef margoft lent
í þessum fordómum og ég vil biðja alla
hér inni sem hafa Ient í fordómum fyr-
ir það að vera femínistar að rétta upp
hönd! - Já þetta grunaði Guddu!
Konur í kvenréttindabaráttu hafa
allar lent í því að reynt sé að þagga þær
niður með orðvopnum. Ég er viss um
að hér inni eru margar reyndar konur
sem geta sagt okkur sögur af þöggun-
araðferðum sem þær hafa orðið fyrir.
Mýtur um að femínistar séu húmors-
lausir, ljótir, loðnir, kunni ekki ensku
og séu teprur eru til að mynda vel
þekktar.
Ég tel mikilvægt að við sem yngri
erum hlustum á hvað þær með reynsl-
una hafa að segja og nýtum okkur þá
reynslu sem fyrri baráttur hafa þegar
aflað sér.
Ég tel mikilvægt að hressa upp á
ímynd femínista til að ná til breiðari
hóps. Eins og staðan er í dag eru
margir þegar búnir að loka eyrunum
aftur áður en femínistinn hefur upp
raust sína.
Ég er tilnefnd sem ráðskona yfir
hópi sem ber heitið fræðsla og fjöl-
miðlar. Þetta finnst mér spennandi
verkefni og ég hlakka sannarlega til að
vinna skipulega að því með öðrum
femínistum að bæta ímynd femínisnt-
ans og sýna fjölmiðlum hve fjölbreyttur
og frábær hópur fólks er femínistar.
Ég er mjög stolt af því að vera í
þessum frábæra hópi sem hér er saman
kominn. Ég er sérlega ánægð með þá
breidd af fólki sem hér er. Kynsióðabil
skiptir ekki máli í okkar boðskap og
þessi breidd verður vonandi til að slá á
þær kreddur að femínistar séu þröngur
hópur nokkurra sérvitringa.
I raun held ég að um leið og fólk sér
hve fjölbreyttur hópur femínistar eru
muni viðhorfið breytast. Það er því
von mín að með Femínistafélagi Is-
lands verði femínistar landsins áber-
andi á sem flestum stöðum og sviðum.
Við höfum tölurnar og rökin fyrir
þörfinni og unt leið og fólk opnar lok-
uð eyrun mun fallegur boðskapurinn
renna ljúft inn og á endanum verður í
tísku að vera femínisti. X
j
Frjálslyndí flokkurinn - Aðalstræti 9 -101 Reykjavik - s. 552-2600 - www.xi.is - xf@xf.is
32 / femínistafélag íslands/ 2. tbl. / 2003 / vera