Vera - 01.04.2003, Blaðsíða 54
»Svanborg Sigmarsdóttir, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur hjá Borgarfræðasetri, hefur
á síðustu misserum verið að skrifa doktorsritgerð um mannlega virðingu í stjórnmálakenn-
ingum og -stefnum við University of Essex í Colchester í Bretlandi. Viðfangsefni Svanborgar
er afar athyglisvert og vekur upp margar spurningar. í ritgerðinni leitast hún við að skilgreina
hugtakið mannleg virðing og rannsakar hvaða skilningur hefur verið lagður í hugtakið á ýms-
um tímum í veraldarsögunni. Ekki síst leitar Svanborg eftir skilgreiningum og tengslum hug-
taksins við nútímann og þær stjórnmálastefnur sem hæst ber á Vesturlöndum í dag.
Svanborg er einnig stundakennari við Háskóla íslands og bera námskeiðin hennar þar ótvírætt
vitni um viðfangsefni hennar. Eitt námskeiðanna er kveikjan að þessu viðtali en það ber yfirskrift-
ina „Á lífsiðfræði hlutverk í stjórnmálum?" Á námskeiðinu fjallar Svanborg m.a. um ýmis málefni
sem tengjast mannlegri virðingu í nútíma tæknivæddu samfélagi.
Martha Árnadóttir Svanborg útskrifaðist með BA - próf í stjórnmálafræði frá Há-
skóla íslands vorið 1996 og hélt um haustið til Bretlands í
framhaldsnám með 2 ára dóttur sína, Þórhildi Dagbjörtu, á
handleggnum. „Bretland kom mér að mörgu leyti á óvart, ég
hafði búist við mun barnfjandsamlegra umhverfi en kom á
daginn, því ég hafði heyrt að Bretar elskuðu hundana sína
meira en börnin. Þórhildur Dagbjört fór á mjög góðan leik-
skóla og var fljót að aðlagast og læra enskuna. Mikil umræða
er í Bretlandi um börn og skólamál, foreldrar velta mikið fyr-
ir sér hvað er kennt í skólum og hvenær er best að börn byrji í
almenna skólakerfinu. Það fór vel unr okkur mæðgurnar í
Bretlandi og lífið gekk ljómandi vel. Að vera einstæð móðir,
hvort sem er heima eða að heiman, er lítið mál og nálgast
stöðugt normið,“ sagði Svanborg og yppti öxlum yfir spurn-
ingunni um hvort þetta hafi ekki verið erfitt.
Mannleg vera
Svanborg kom heim haustið 2001 og hóf þá störf á Borgar-
fræðasetri og við stundakennslu í Hl, meðfram því að vinna
að doktorsritgerðinni. Þá vaknar spurningin hvernig Borg-
arfræðasetur tengist viðfangsefnum Svanborgar, mannrétt-
indum og mannlegri virðingu.
„Borgarfræðasetur er sjálfstæð rannsóknastofnun sem Há-
skóli íslands og Reykjavíkurborg standa að og er ætlað að
stunda rannsóknir á sviði borgarfræða. Mitt hlutverk hefur
verið að skoða stjórnmál og lýðræði í Reykjavík. Þessa dagana
er ég m.a. að hugsa um lýðræði í Reykjavík frá hugtakinu
„urban rights“ eða þéttbýlisréttindi. Hugtakið kemur fyrir í
stefnumarkmiði Evrópuráðsins og þarna cr verið að skilgreina
rétt þéttbýlisbúa til ýmissa lífsgæða, eins og almenningssam-
gangna, að anda að sér hreinu lofti og að búa í öruggu um-
54 / viðtal / 2. tbl. / 2003 / vera