Vera - 01.04.2003, Blaðsíða 72
/FRÁ JAFNRÉTTISSTOFU
Jafnréttisstofa
Jafnréttisþing 2003
»Jafnréttisstofa, Jafnréttisráð og félagsmálaráðuneyti héldu Jafnréttisþing
7. apríl síðastliðinn í Ketilhúsinu á Akureyri, og reyndar víðar um hið svokall-
aða Listagil því vinnustofur fóru einnig fram í Deiglunni og á Hótel KEA. Til-
gangur þinghaldsins var að líta á stöðu kynjanna í fortíð og nútíð með það
fyrir augum að leggja línurnar fyrir framtíðaráherslur. Þá var einnig lögð á-
hersla á að virkja stjórnmálafólk í umræðuna um stöðu kynjanna því
framundan eru, eins og við öll vitum, þingkosningar í maí. Þingstjórar voru
Valgerður H. Bjarnadóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu og Elín R. Líndal
formaður Jafnréttisráðs. Félagsmálaráðherra Páll Pétursson, sem jafnframt er
ráðherra jafnréttismála, flutti opnunarávarp á þinginu.
*
Aðalfyrirlesarar voru fjórir. Anne Havnor sérfræðingur í
norska barna- og íjölskylduráðuneytinu og formaður nor-
ræns vinnuhóps um kynjaða fjárhagsáætlanagerð, Jorgen
Lorentzen sérfræðingur í karlamálum við Rannsóknastofn-
un í kvenna- og kynjafræðum við Óslóarháskóla og ung-
femínistarnir Kristbjörg Kristjánsdóttir og Hólmfríður
Anna Baldursdóttir úr Bríeti.
Anne Havnor fjallaði um kynjaða fjárhagsáætlanagerð,
(gender budgeting), en það hugtak hefur verið útvíkkað hér-
lendis svo það nái einnig til alls ferlisins í kringum fjárhags-
áætlanagerðina og verið kallað kynjuð hagstjórn. Jorgen
Lorentzen fjallaði um stöðu karla á Norðurlöndunum og
mikilvægi þess að þeir taki þátt í jafnréttisbaráttu kynjanna
og kannist við að eiga vandamálið t.d. varðandi ofbeldi. Um-
fjöllunarefni Hólmfríðar Önnu og Kristbjargar var sýn
ungra femínista á jafnrétti kynjanna og augljóst var að þær
höfðu skýra sýn á málefnið.
Jafnréttismál á dagskrá í stjórnmálaumræðu
Eins og áður var nefnt var eitt af markmiðum þingsins að
koma jafnréttismálum á dagskrá í þeirri pólitísku umræðu
sem fram fer þessa dagana. Þess vegna voru fengnir tveir
fulltrúar frá hverjum stjórnmálaflokki sem býður fram á
landsvísu, ein kona og einn karl, til þess að hafa frantsögu
um áherslumál viðkomandi flokks hvað varðar kynjajafn-
rétti og til að taka þátt í umræðum. Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur og fýrrverandi alþingiskona, núverandi
framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu íslands, gegndi
hlutverki sérfræðings í pallborðinu en hún varpaði ljósi á
stöðu kynjanna og setti fram gagnrýni sem fulltrúar flokk-
anna höfðu tækifæri til þess að svara. Úr þessu spunnust
fjörugar og skemmtilegar umræður og var ekki annað að
heyra en allir flokkar séu sammála um að þörf sé á því að
jafna hlut leynjanna í íslensku samfélagi og séu tilbúnir til
þess að leggja áherslu á að það verði gert á nýju kjörtímabili-
Þrjár vinnustofur
I vinnustofunum þremur sem starfandi voru á þinginu var
fjallað unt þrjú meginþemu: Samþættingu kynja- og jafn-
réttissjónarmiða, vinnumarkað og samskipti kynjanna.
72 / frá jafnréttisstofu / 2. tbl. / 2003 / vera